Norðurljósið - 01.01.1965, Blaðsíða 36

Norðurljósið - 01.01.1965, Blaðsíða 36
36 NORÐURLJÓSIÐ an dýrð sína og dýrð Jesú frá Nazaret, tilbeiðslu sína og tilbeiðslu hans. Með þessu hefir hann auglýst fyrir al- heiminum, að guðdómur Jesú frá Nazaret er guðdómur Guðs sjálfs. Við hljótum að trúa staðreyndum fremur en hugsmíð- um. Við hljótum að trúa þeim vitnisburði, sem ritningin hefir borið um Jesúm frá Nazaret. Við skulum því lúta honum, tilbiðja hann og segja við hann eins og Tómas forðum: DROTTINN MINN OG GUÐ MINN. S. G. J. ---------x--------- KYNNI MÍN AF MERKU FÓLKI 2. Brúður dauðans varð brúður lífsins Frásögn birt eftir áskorun. 1. Inngangur. Vorið 1923 kvað læknir þann dóm upp yfir mér, að ég hefði „slím“ í lungum. Yfirlæknirinn á Vífilsstöðum stað- festi það um haustið, að ég væri með berkla í lungum á byrjunarstigi. Sýndi hann mér þá vinsemd, að láta sjúkra- rúm bíða eftir mér nokkurn tíma, meðan ég kenndi fólki, sem ætlaði að þreyta inntökupróf í Kennaraskólann þá um haustið. H.inn fyrsta dag vetrar rölti ég svo frá Reykjavík til Vífilsstaða. Þar var þá fyrir merkiskona, frú Valgerður Briem, fyrri kona sr. Þorsteins Briem á Akranesi. Hana hafði ég áður séð. Hún var trúkona mikil og vildi láta alla njóta þess yls og þeirrar birtu, sem Guðs orð getur veitt sálum mannanna. Hún hafði séð um, að guðræknistundir voru þar um hönd hafðar á sunnudögum og fékk þá menn til að lesa lestur.inn, einhverja prédikun eða prentaða ræðu. Þetta starf fól hún mér að annast, því að hún var þá á förum. Með frú Valgerði var á stofu ung stúlka, sem alltaf var kölluð Dúna. Um hana sagði frú Valgerður við mig: „Dúna er ágætur unglingur, en hún er ekki orðin staðföst í trú sinni.“ Ég skildi, hvað hún fór. Hún var að fela mér hlut- verkið háleita og vandasama: að leiða sál á vegu trúar á Krist sem persónulegan frelsara hennar. Dúna hét annars fullu nafni Guðrún. Hún var dóttir síra Böðvars Bjarnasonar frá Reykhólum. Sá ættleggur var mér kunnur. Móðir mín hafði ver.ið á Reykhólum ferm- ingarvorið sitt og hafði sagt mér frá Bjarna og Þóreyju, konu hans, sem var systurdóttir Jóns Thóroddsens skálds. Ég kynntist Guðrúnu ekki mikið, meðan ég var á Víf- ilsstöðum, en mér duldist ekki, að góð sál fór þar, sem Guðrún fór. Skal hér sagt frá einu atviki. Siður var — og sjálfsagt er — á Vífilsstöðum, að sjúkl- ingar .iðkuðu göngur, þeir, sem gagn gátu haft af þeim. Dag nokkurn síðdegis var illviðri mikið, er ég ætlaði út. Allmargir karlmenn stóðu þá inni í fatageymslu, þar sem við geymdum skó og yfirhafnir, í stað þess að fara út. Hjá þeim var roskinn maður, og var hann að syngja: „Frá Höfn er karlinn kominn heim.“ En eig.i hafði hann fyrr lokið erindinu en hann var beðinn að syngja það aftur. Auðheyrt var, að hann var tekinn að þreytast. En því rámari, sem hann varð, því meir hvöttu gárungarnir hann að halda áfram. Mér þótti þetta Ijótur leikur og vildi stöðva hann, en vissi eigi, með hverjum hætti ég gæti það. Rétt í þessu kom Dúna að. Hún leit á manninn og mælti brosandi: „Ég held þú ættir ekki að syngja meira núna, Olafur minn.“ Gamli maðurinn leit á hana, hálfráðvilltur að sjá. Nú greip ég tækifærið og studdi mál Dúnu. Þá kom á hann feginssvipur, hann kvaðst vera þreyttur og hætti. Dúna leit á mig þakklátum augum. Eftir þetta kynntumst við Guðrún dálítið, en þó eigi svo, að við hættum að þérast. Og þannig fór ég frá Vífils- stöðum, að ég virtist ekki feti nær því marki, sem mér fannst mér falið að ná: að leiða Dúnu til staðfastrar trú- ar á Krist, sem eigin frelsara hennar. Ég náði heilsu minni að fullu. En berklarnir náðu æ meiri tökum á Guðrúnu á næstu árum, t. d. varð hún að liggja tvö ár í gifsi. Hún var dauðanum vígð. Afturhvarf Guðrúnar. Vorið 1934 fór Arthur Gook til Reykjavíkur, og ég með honum, og hélt þar samkomur. Að þeim loknum hélt hann til Englands, en ég varð eftir í Reykjavík til að sinna inn- heimtu ársgjalda Norðurljóssins. Ég hélt þá einnig sam- komur og var beðinn að annast morgunlestra i elliheim- ilinu Grund. Var ég syðra um mánaðartíma við þetta starf. Meðan ég var syðra, heimsótti ég Guðrúnu Böðvars- dóttur nokkrum sinnum. Eins og að líkum lætur barst tal okkar oft að trúmálum, en ég fann, að mér vannst lítið á. Hún var bjargföst í þeirri trú, að sérhver maður verð- ur að bera afleiðingar verka sinna hér í lífi, þegar hann fer inn í næstu tilveru eftir þessa. Áður en ég ætlaði norður, kom ég að kveðja. Ég hafði þá tilfinningu, að nú yrði að skríða til skarar, úrslitaorr- ustan yrði að standa nú. Frá því samtali, sem þá fór á milli okkar, reyni ég að segja, eins rétt og mér er frekast unnt. Ég hefi oft farið yfir það í huganum og man það að minnsta kosti í aðal- atriðum. Er ég hóf samtalið, flúði hún fljótlega inn í þetta varn- arvirki sitt: Það er óumflýjanlegt, að við verðum að bera afleiðingar gerða okkar. Það er óbreytanlegt lögmál. Ég svaraði: „Þetta er alveg satt, nema í því tilfelli, þeg- ar þetta lögmál er upp hafið.“ Hún spurði, hvernig það mætti verða. Ég svaraði með því að vitna til friðþægingar Krists, að hann tók á sig hegninguna, sem okkur bar að líða. Þess vegna kemur ekki endurgjaldslögmálið niður á þeim, sem tekið hafa á móti Kristi sem frelsara sínum. Þá mælti Guðrún: „Þetta er of gott til að geta verið satt.“ „Ekki, þegar Guð á í hlut,“ svaraði ég. Við ræddum þetta nánar. Mér varð Ijóst, að nú vildi hún trúa þessu, en gat það ekki. Það var eins og eitthvert ósýnilegt vald héldi henni fastri. Hvernig átti að fást við það vald?
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96

x

Norðurljósið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Norðurljósið
https://timarit.is/publication/128

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.