Norðurljósið - 01.01.1965, Blaðsíða 30

Norðurljósið - 01.01.1965, Blaðsíða 30
30 NORÐURLJÓSIÐ Hver var Jesús frá Nazaret? Eftir ritstjórann. (Fólki er bent á aS lesa þcsso mikilvægu grein ALLA, en lesa ekki nema fóa kafla í einu). Æsfir óheyrendur. Við hugsum okkur, að við séum stödd í Jerúsalem á dögum Jesú frá Nazaret. Við hugsum okkur einnig, að við skiljum málið, sem fólkið talar. V.ið göngum til must- erisins með öðrum inn um hlið. Þar tekur við stórt svæði, sem menn kalla forgarð heiðingjanna af því að þangað koma allir, hvort sem þeir eru Gyðingar eða ekki. Þá er .innar, nær sjálfu musterinu, annar garður. Þangað mega allir Gyðingar koma, karlar jafnt sem konur. í þessum .innri garði er maður að halda ræðu. Gegnum opið hliðið heyrum við, að hann segir: „Ég fer burt, og þér munuð leita mín, en — þér munuð deyja í synd yðar; þangað, sem ég fer, getið þér ekki komizt.“ Þá verður kliður meðal áheyrendanna, og sumir segja: „Skyldi hann ætla að fyrirfara sér, úr því að hann segir: Þangað, sem ég fer, getið þér ekki komizt.“ Ræðumaðurinn, sem er Jesús frá Nazaret, svarar þessu þannig: „Þér eruð neðan að, ég er ofan að; þér eruð af þessum heimi, ég er ekki af þessum heimi. Þess vegna sagði ég við yður: Þér munuð deyja í syndum yðar. Því að ef þér trúið ekki, að ég er sá, sem ég er, (á grísku að- eins: ÉG ER), þá munuð þér deyja í syndum yðar.“ Aheyrendur grípa fram í og spyrja Jesúm: „Hver ert þú?“ Þessi spurning gleður okkur, því að nú hlýtur hann að segja, hvað hann átti við með orðunum: „Ég er.“ Hví sagði hann ekki: „Ég er spámaður,“ eða: „Ég er kon- ungurinn, Kristur, sem þið hafið vonazt eftir?“ Undrun okkar vex, því að hann svarar ekki beinni spurn- .ingu. Hann segir: „Til hvers ætti ég yfirleitt að vera að tala við yður?“ Og eftir nokkur fleiri orð segir hann: „Þegar þér hefjið upp manns-soninn, þá munuð þér kom- ast að raun um, að ég er sá, sem ég er, og að ég geri ekk- ert af sjálfum mér.“ Hann heldur áfram ræðu sinni. En auðheyrt er, að á- heyrendur eru honum andvígir. Þeir fara að æsast upp, og æsing þeirra nær hámarki, þegar hann segir: „Sannlega, sannlega segi ég yður: Áður en Abraham var til, er ég.“ Um leið og hann hefir sagt þetta fara menn að taka upp steina til að kasta á hann. Þeir ætla að grýta hann. Skyndilega hverfur hann þeim, svo að þeir koma ekki fram áformi sínu. Hvað olli þessari æsingu, sem greip fólkið, þegar Jesús frá Nazaret sagði: „Aður en Abraham varð til, er ég.“? Við fáum svarið í 2. bók Móse, 3. kafla 14. og 15. versi: „Þá sagði Guð við Móse: „Ég er sá, sem ég er.“ Og hann sagði: Svo skalt þú segja ísraelsmönnum: „Ég er“ sendi mig til yðar .... þetta er nafn mitt um aldur, og þetta er nafn mitt frá kyni til kyns.“ Við munum þessa frásögu, þegar Móse vildi fá að vita nafn Guðs, svo að hann gæti sagt Israelsmönnum það, þegar þeir spyrðu hann. Þegar við minnumst þessa, getum við skilið, hvers vegna Gyðingarnir vildu grýta Jesúm frá Nazaret, þegar hann tók sér nafn Guðs í munn og þar með kvaðst vera hann. Menn, sem lastmæltu nafni Guðs, voru dauðasekir og skyldu deyddir með grjótkasti. (3. Mós. 24.). Gyð- ingar áttu aðeins um tvennt að velja við þetta tækifærri: Að trúa því, að Jesús segði satt, eða trúa því ekki. Flestir þeirra vildu ekki trúa því: að Guð væri meðal þeirra í persónu Jesú frá Nazaret. Þeir eiga marga skoðanabræð- ur eða trúbræður í dag. Fjöldi manna og voldugar trúar- stefnur neita því afdráttarlaust, að Guð haf,i birzt meðal manna í persónu Jesú frá Nazaret. Getum við þá fundið sannleikann í þessu máli? Var Jesús maður aðeins, meðan hann var hér á jörðu? Var hann Guð og maður, Guð í mannlegum líkama? Hvernig fáum við áreiðanlega vitneskju um þetta? Um vitneskjuna verður að leita til samtíðar hans, fólks- ins, er sá hann og heyrði, mannanna, sem skrifuðu um hann. Atvikið, sem sagt er frá hér að framan, er skráð í guð- spjalli Jóhannesar, 8. kafla. Af því, sem þá gerðist, getum v.ið séð, að fólkið, sem hlustaði á hann, skildi orð hans þannig, að hann væri að staðhæfa, að hann væri Guð. Eitt- hvað svipað hafði áður gerzt. „Gerði sig Guði jafnan." í 5. kafla sama guðspjalls segir frá manni, sem Jesús læknaði. En það var hvíldardagur Gyðinga þennan dag. Eigi að síður sagði Jesús manninum að taka sæng sína. Maðurinn hlýddi því. Þetta fannst Gyðingum freklegt brot á helgi hvíldardagsins. Þá sagði Jesús: „Faðir minn starf- ar allt til þessa, ég starfa einnig.“ Hvernig skildu Gyðingarnir, samtímamenn Jesú, þessi orð hans? Þeir skildu þau þannig, að hann ætti við Guð, þegar hann nefndi föður sinn. Þess vegna lesum við: „Fyrir því leituðust Gyð.ingarnir nú enn frekar við að ráða hann af dögum, að hann ekki einungis braut hvíld- ardagshelgina, heldur einnig kallaði Guð föður sinn og gerði sjálfan sig að Guði jafnan.“ Við athugum þetta nánar. Gyðingarnir skilja orð Jesú þannig, að hann staðhæfi tvennt: Að Guð sé faðir hans, og að hann sé jafn Guði. Höfum við nokkurn rétt til að skilja orð Jesú á ann-
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96

x

Norðurljósið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Norðurljósið
https://timarit.is/publication/128

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.