Norðurljósið - 01.01.1965, Síða 28

Norðurljósið - 01.01.1965, Síða 28
28 N ORÐURLJ ÓSIÐ Hvað gerist? Kristur tekur við honum, því að hann hefir sagt: „Þann, sem til mín kemur, mun ég alls ekki burt reka.“ Kristur endurnærir hann, og hann lifnar við. Meðan Egyptinn lá svo ósjálfbjarga á eyðimörkinni, vissi hann ekki, að hann ætti eftir að gegna mikilvægu hlutverki. Davíð tók hann í þjónustu sína, að hann skyldi vísa honum veg til ræningjaflokksins. Egyptinn er þá allt í einu orðinn einhver þarfasti maðurinn í þjónustu Davíðs. Hann einn veit, hvar ræningjanna er að leita. Hann er fús til að leiðbeina Davíð, en setur þó eitt skilyrði: Davíð verður að vinna honum eið að því, að drepa hann ekki eða framselja hann fyrrverandi húsbónda hans. Davíð vann síðan frægan sigur á ræningjunum og frelsaði alla þá, sem þeir höfðu rænt. Lesi nokkur sá línur þessar, sem telur úti um sig, líf.ið gagnslaust, framtíðina glataða, þá viti sá hinn sami, að svo þarf ekki að vera. Þín getur beðið nytsöm framtíð með Kristi Jesú sem frelsara þínum, ef þú kemur til hans og Ieyfir honum að gera allt það fyrir þig og með þig, sem hann vill. Þetta var það, sem Egyptinn leyfði Davíð. Hann var svo hygginn að þrjóskast ekki við, heldur taka á móti nærandi fæðunni, sem menn Davíðs gáfu hon- um, og þjónustunni, sem hann átti að inna af hendi. Drottinn Jesús hefir fæðu og drykk handa þér til að næra sálu þína og svala henni. Sú fæða, sá drykkur er hann sjálfur. Hann sagði: „Þann mun ekki hungra, sem til mín kemur, og þann aldrei þyrsta, sem á mig trúir.“ Þegar þú hefir etið og drukkið hjá honum, þá lifnar þú við. Lífið verður bjart, meira að segja bjartara en fyrr, því að framtíð í fylgd með Jesú er fögur og björt. Drottinn Jesús hefir verk handa þér að vinna. Hann er í björgunarleiðangri um heiminn með menn sína. Hann vill fá þig til að taka þátt í þessu starfi, að þú segir öðr- um frá, hvernig hann hefir miskunnað þér og frelsað þig. Þá geta aðrir einnig farið að trúa á hann, aðrir, sem enn liggja ósjálfbjarga á eyðisöndum mannlífsins. En fyrst af öllu verður þú að leyfa mér sem einum af mönnum Jesú að taka í hönd þér og fara með þig til hans. Viltu biðja eftirfarandi bænar eins innilega og með þeirri alvöru, sem þú getur: „Kæri Drottinn Jesús, þú hefir sagt: þann, sem til mín kemur, mun ég alls ekki burt reka. Eg kem þess vegna til þín. Ég er hungraður og þyrstur, mér líður illa í sál minni. Ég. hefi þjónað syndinni, en vil ekki gera það lengur. Gefðu mér góðu gjafirnar þínar, sjálfan þig, Anda þinn og eilífa lífið. Varðveittu mig frá því að falla í synd og þjóna henni framvegis. Ég vil í staðinn þjóna þér. Gefðu mér að hjálpa öðrum mönnum til að finna þig. Bænheyrðu mig fyrir þíns nafns sakir. Amen.“ Egyptinn hefir víst aldrei gleymt þeim degi, þegar menn Davíðs fundu hann og fóru með hann til herra síns. Gleymdu heldur aldrei þessum degi. Minnstu þessarar stundar, er þú nú komst á fund Drottins Jesú í bæn. Fylgdu honum upp frá þessu, eftir því ljósi, sem hann gefur þér, er þú lest orð hans í nýj a testamentinu. Reiddu þig á hann, að hann hjálpi þér, þegar freistingar mæta þér, eða ein- hverjir erfiðleikar. Hann rekur þig ekki burt, þegar þú kemur með allt til hans, bæði sorgir og gleði, vonir og erfiðleika. „Þann, sem til mín kemur, mun ég alls ekki burt reka,“ hvorki nú eða síðar. Hann mun annast þig. ---------x-------- Svívirðilegt vanþakklæti 1 Norður-Karólína ríki í Bandaríkjunum bjó eitt sinn fátækur bóndi, sem átti gáfaðan dreng. Faðir hans vildi veita honum góða menntun og lagði allt í sölurnar til þess, að „hann fái eins gott tækifæri til að læra og sonur milljónamærings," komst hann að orði. Sonur hans fór í ríkisháskólann, en faðir hans stritaði heima. Dag nokkurn bar svo til, að föðurhjartað fylltist þrá eftir að sjá drenginn sinn og tala við hann. Bóndinn tók þá eitthvað af afurðum búsins og ók af stað í vagninum sínum til að selja þær í borginni. Er hann nálgaðist borg- ina, sagði hann við sjálfan sig: „Jæja, verður ekki dreng- urinn minn hissa? Verður hann ekki glaður að sjá mig?“ Hann herti á gömlu klárunum og hraðaði för sinni. Þegar hann ók upp hæðina að skólanum, sá hann son sinn í hópi glaðværra félaga. Er hann kom nær, flýtti hann sér út úr vagninum til piltsins og sagði: „Ó, drengurinn minn! Drengurinn minn!“ „Þetta eru einhver mistök, herra minn; þér eruð ekki faðir minn. Ég þekki yður ekki,“ svaraði ungi maðurinn, stirður í viðmóti. Þetta varð föðurnum ofraun. Með sundurkrömdu hjarta sneri hann sér við og fór heim til að deyja. „Svívirðilegt vanþakklæti,“ segjum við. En við gleym- um því, að Guð eys yfir okkur blessunum sínum. Samt vilja margir ekki kannast v.ið, að hann veiti þær, að þær séu frá honum komnar. Jafnvel sumir, sem játa nafn Jesú sem frelsara síns, geta stundum sýnt honum vanþakk- læti og lítilsvirðingu: að þegja og skammast sín fyrir hann og nafn hans, þegar þeir eru í hópi óguðlegra manna, í stað þess að játa þá nafn hans og erfa fyrirheit hans: „Hver, sem því kannast við mig fyrir mönnum, við hann mun ég einnig kannast fyr.ir Föður mínum á himnum.“ (Matt. 10. 32.). Þetta er svívirðilegra vanþakklæti en hitt. ---------x-------- NAUÐSYNLEGT AÐ VAKNA Þegar John McNeil, alkunnur prédikari, var drengur, vann hann við járnbraut í Vestur-Skotlandi. Skipti-eim- vagn stanzaði rétt við hús hans og eimpípan blés, svo að hann varð að vera tilbúinn að stökkva upp í hann um leið. Morgun einn var hann mjög syfjaður. Hann vaknaði, en klœddi sig ekki. Eimvagninn kom að venju, og vagn- stjórinn þeytti eimpípuna af fullum krafti, svo að allir þorpsbúar vöknuðu. Þegar drengurinn kom heim að borða, sögðu allir við hann: „Jæja, Jonni minn, þú varst fjarska seinn í morgun!“ Stundum þarf Guð að láta eim- pípu sína blása nokkuð hátt til þess að vekja okkur af svefn- mókinu. Þess vegna — Vakna þú! (Efes. 5. 14.)
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96

x

Norðurljósið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Norðurljósið
https://timarit.is/publication/128

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.