Norðurljósið - 01.01.1965, Síða 31
NORÐURLJÓSIÐ
31
an hátt en þessir menn, sem heyrðu hann tala þau? Alls
ekki. Var ekki Jesús frá Nazaret ábyrgur orða sinna og
gerða? Auðvitað var hann það. Þeir, sem heyrðu hann
segja þetta, voru í engum vafa um, að hann meinti það,
sem hann sagði, og að hann var ekki brjálaður.
Við sjáum ennfremur, að vegna þessara orða sinna, var
hann kominn í lífshættu. Ef Gyðingar höfðu misskilið
orð hans, var ósköp auðvelt að leiðrétta þann misskilning.
En Jesús gerði það ekki. Sannleikans vegna kaus hann lífs-
hættu fremur en draga nokkuð úr staðhæfingu sinni.
Önnur hlið er einnig á þessu máli. Við vitum, að það
er siðferðileg skylda sérhvers manns, að leiðrétta mis-
skilning, sem orð hans hafa valdið. Það var því siðferði-
leg skylda Jesú að leiðrétta misskilning Gyðinga, ef um
misskilning var að ræða. Þar sem hann gerði það ekki,
þá staðfestir hann þar með, að skilningur Gyðinga sé
réttur: Að Guð sé faðir hans og að hann sé jafn Guði.
Alvarlega hl.ið málsins er þessi: Ef Jesús frá Nazaret
sagði eitthvað um sjálfan sig, sem ekki var stranglega
satt, þá var hann orðinn ósannindamaður. Slíkt er ekki
hugsanlegt um hann, því að hann sagði: Ég er sannleik-
urinn. Þess vegna hlýtur hann að hafa sagt satt. Ef hann
sagði eitthvað um uppruna sinn og eðli, sem menn mis-
skildu, ef hann vissi um þennan misskilning þeirra, var
það þá ekki skylda hans að leiðrétta hann? Hann vissi,
hvernig menn skildu orð hans, en leiðrétti þau ekki. Þess
vegna höfðu menn skilið þau rétt. Sbr. Jóh. 6. 56.—63.
Við höfum séð hér að framan, að Jesús hélt því fram,
að þeir, sem ekki trúa því, að hann er sá, sem hann er,
þeir munu deyja í syndum sínum. Eftir dauðann geta
þeir ekki komizt þangað, sem hann er, eða svo sagði hann
sjálfur. Af þessu leiðir, að honum hlýtur að hafa verið
ákaflega annt um, að menn gætu haft rétta hugmynd um,
hver hann væri. Þegar menn sögðu, að hann hefði illan
anda, neitaði hann því. Þegar óvinir hans sögðu, að hann
gerði kraftaverk sín með fulltingi Beelsebúls, djöfulsins,
sagði hann, að þeir hefðu talað lastmæli gegn heilögum
Anda og orðið sekir um synd, sem aldrei yrði fyrirgefin,
hvorki í þessum heimi né hinum komandi. Af þessu sjáum
við, að honum stóð ekki á sama, hverju trúað var um
hann.
Ovenjufeg hondtoko.
í þeirri hlíð Olíufjallsins, er snýr að Jerúsalem, er enn
til þessa dags garður, sem nefndur er Getsemane. Ef við
hefðum verið þar stödd í aprílbyrjun fyr.ir 1935 árum
eða svo, þá hefðum við séð þar lítinn hóp manna, 12 alls.
Tunglið er gengið undir, og nóttin er hljóð og dimm.
Skyndilega er dimman og kyrrðin rofin, þegar hersveit
kemur þangað ásamt þjónum frá æðstu prestum Gyðinga
og Faríseunum. Þeir bera bæði blys og lampa.
Fram úr litla hópnum gengur maður, Jesús frá Naza-
ret, og segir við þá: „Að hverjum leitið þér?“ Þeir svör-
uðu: „Að Jesú frá Nazaret.“ Jesús segir við þá: „Ég er.
(hann).“ .... Þegar hann nú sagði: „Ég er (hann),“
hopuðu þeir á hæl og féllu til jarðar.“ (Jóh. 18. 4.—6.).
Hér verður að geta þess, að Jesús sagði ekki: „Ég er
hann,“ heldur aðeins: „Ég er.“
Er þetta venjuleg handtaka, sem þarna fer fram? Sam-
kvæmt heimild Matteusar í guðspjalli hans (26. 47.) var
það mikill mannfjöldi, sem kom til að handtaka Jesúm. En
allur þessi fjöldi hopar á hæl og fellur til jarðar fyrir
krafti þessa nafns guðdómsins, sem Jesús tileinkar sér.
Með þessu gaf hann enn til kynna, að hann væri enginn
venjulegur maður, sem handtaka mátti að vilja manna
og fjötra, heldur Guð og maður, sem vildi sjálfur láta
taka sig, fjötra og deyða, af því að til þess var hann kom-
inn.
Jesús lét síðan binda sig og leiða til yfirheyrslu. Ef
lesið er allt, sem guðspjöllin segja frá réttarhöldunum,
þá kom aldrei fram nokkur ákæra, sem hann þyrfti að
svara, af því að aldrei komu fram tveir menn, sem bæru
alveg samhljóða vitnisburð.
Æðsti presturinn greip seinast til þess ráðs, að fleygja
öllum réttarreglum Gyðinga fyrir borð og spyrja Jesúm
blátt áfram undir eið: „Ég særi þig við Guð hinn lifanda,
að þú segir oss, hvort þú ert Kristur, Guðs-sonurinn.“
Þessu svaraði Jesús þannig: „Þú sagðir það. En ég
segi yður, að upp frá þessu munuð þér sjá manns-soninn
sitja til hægri handar máttarins og koma á skýjum him-
ins.“
„Hann hefir guðlastað."
Þá reif æðsti presturinn klæði sín og segir: „Hann
hefir guðlastað! Hvað þurfum vér framar votta við?
Sjá, nú hafið þér heyrt guðlastið.“ (Matt. 26. 63.—65.).
Nú skulum við athuga þetta ofurlítið nánar.
Hvað átti Jesús við með orðunum: „Þú sagðir það“?
Kvöldið áður hafði Jesús sagt lærisveinunum, að einn
þeirra mundi svíkja hann. Þá spurði Júdas, „Er það ég,
rabbí?“ „Þú sagðir það,“ svaraði Jesús. Hann hefði alveg
eins getað sagt: „Já, sannarlega.“ Svar hans: „Þú sagðir
það,“ merkir því mjög ákveðið jáyrði.
Hvað merktu orð æðsta prestsins: „Kristur, Guðs-son-
• O ii
urinn r
Nafnið Kristur merkir „smurður," á grísku Messías.
Það táknaði konung, sem Guð mundi senda ísraelsmönn-
um. Um þennan komandi konung eru margir spádómar í
ritum gamla testamentisins. Sýndu þeir glöggt, að Krist-
ur yrði af guðlegum uppruna. Má nefna hér nokkra þeirra:
Jesaja spáði, að yngismær yrði þunguð og fæddi son
„og lætur hann heita Immanúel," — Guð með oss. Þessi
spádómur er heimfærður til fæðingar Jesú. (Matt. 1. 23.).
Ennfremur ritaði Jesaja, og eru hér orðin bókstaflega
þýdd: „Barn er oss fætt, sonur er oss gefinn; á hans herð-
um skal höfðingjadómurinn hvíla; nafn hans skal kall-
að Undursamlegur, Ráðgjafi, Máttugur Guð, Faðir ei-
lífðar, Friðarhöfðingi.“
Jeremía spáði um hann: „Sjá, þeir dagar munu koma.
segir Drottinn, að ég mun uppvekja Davíð réttan kvist,
er ríkja skal sem konungur og breyta viturlega og iðka
rétt og réttlæti í landinu. Á hans dögum mun Júda hólp-
inn verða og Israel búa óhultur, og þetta mun verða nafn
hans, það er menn munu nefna hann með: Drottinn vort
réttlæti.“ (Jerem. 23. 5.—6.).