Óðinn - 01.01.1920, Side 13
ÓÐINN
13
þá þegar var byrjað á virkjun hans — fyrir mjög
sanngjarnt verð, og sem nú mundi blátt áfram
talið gjafverð. Bærinn var rjett að segja genginn
að kaupunum, en á síðustu afgerandi stundu var
málinu brjálað svo, að ekki varð neitt úr því.
Þá var það, að fjelagið mikla og volduga, hið
svonefnda »Kj7kkelsrud«-fjelag, sem hafði selt
bænum þá aðalraforku, er hann þarfnaðist, greip
tækifærið, og keypii fossinn. Fjelagið gerði það
frá Kykkelsrudfjelaginu. Leiðslurnar liggja jafnt
inn í slórhýsi og kofa; allir bændur hafa ljós og
orku til vjela; allskonar smáiðnaður, og jafnvel
stóriðnaður í ekki smáum stýl, hefur komið upp,
já, þotið upp vegna þess, hve auðvelt befur verið
að afla ódýrrar raforku. Og enginn hefur lært það
betur en bóndinn að nota orkuna, til lýsingar,
bæði úti og inni, til allskonar vjela heima við og
til upphitunar bæði i híbýlum og peningshúsum.
V. ^Q||««r«'■ u. ........'Vt;.
u ■I ‘‘t&rkiíSZi. ss ;1''! J
Yammaljörnin með orkuverki.
Vammatjörn.
auðvitað í hagnaðarskyni, og það hefur reynst því
arðsamt fyrirtæki.
Áður en stríðið hófst var búið að virkja alls
svo mikið að nam 48,000 hestöflum, en siðan
hefur orkuverið verið aukið svo, að nú eru fram-
leidd um 75,000 hestöfl. Áður hafði fjelag þetta
látið virkja helminginn af Sarpsfossi, um 25,000
hestöfl og auk þess 45,000 í Kykkelrudfossi, er
fjelagið hefur nafn sitt af. Fjelagið veitir nú fyrst
og fremst sínum eigin iðnaðarverum raforku, og
hefur auk þess lagt heilt net af leiðsluþráðum um
öll hin víðáttumiklu og auðugu hjeruð kringum
Kristjaníu og Kristjaníufjörðinn. Auk Kristjaníu
fá bæirnir Frederiksstad, Moss og Dröbak raforku
Vamma-orkuverið liggur um 50 km. í landsuður
frá Kristjaníu. Fallhæðin er 27 m. á hæð, og
vatnsmegnið er 230 teningsmetrar á sekúndu.
Orkustöðin liggur beint undir gríðarmikilli stein-
steyptii tjörn, 280 m. á lengd, sem er'bygð þvert
yfir Glommen. þegar hún er að öllu leyti full-
búin verður stöðin 160 m. á lengd, og rúmar þá
15 fallhjól, hvert með 12,000 hestöflum, eða hefur
alls 180,000 hestöfl. Eftir því sem kunnugt er,
verður hún langöflugasta orkustöð í heiminum.
Glommen svipar að öðru leyti neðan til ekki
svo lítið til Þjórsár. Hún er þar breið, vatnsmikil
og fremur lygn; fallhæð fossanna þar er því
fremur lítil. En það er hið fejknamikla vatnsmagn,