Óðinn - 01.01.1920, Blaðsíða 31
ÖÐINN
31
maður og framkvæmdarsamur atorkumaður. Bún-
aðist honum vel og græddist fje furðanlega fljótt.
Hann hneigðist og snemma til bóka og var sömu-
leiðis hinn listfengnasli til smíða. Einkum lagði
hann stund á silfursmíði og rennismíði. — Yfir
höfuð fjekk hann, tilsagnarlítið, aflað sjer svo
mikillar kunnáttu og menningar, að þegar hann
var orðinn fulltíða maður, þótti hann mjög fvrir
öðrum jafnöldrum sínum, þeim er ólærðir voru
kallaðir, jafnvel þótt betri menningarskilyrðum
hefðu átt að fagna en hann.
Um þær mundir er Baldvin gerðist fulltíða og
hjer er komið sögunni, var síra Jón Austmann
prestur í Bárðardal og bjó að Halldórsslöðum.
Hann var merkismaður,
vel að sjer um margt og
kallaður læknir góður.
Var þá læknaöld mikil
hjer í Þingeyjarsýslu, er
þeir voru hjer samtímis
prestarnir þrír, síra I’or-
steinn Pálsson á Hálsi,
síra Jón Austmann og
sira Magnús Jónsson á
Grenjaðarstað. Póttu þeir
allir í þá daga vel að sjer
í læknisvísindum og fóru
með meðul og lækning-
ar og þótti vel gefast;
enda þá síður kostur annara lærðari Iækna en nú
er orðið.
Sira Jón Auslmann mun íljólt hafa tekið eftir
gáfum Baldvins og algervi. Enda talaðist svo til,
þá er Baldvin hafði búið 6 ár að Kálfborgará, að
hann brá búi og flultist að Halldórsstöðum til
þess að stunda nám hjá presti. Var hann þar síð-
an í 3 ár, naut bóka og Ieiðsagnar síra Jóns, nam
af honum dönsku og þýsku og lagði sig eftir lækn-
isvísindum (homöopali), sem hugur hans tók þá
mjög að hneigjast að.
Skömmu eflir að Baldvin kom að Halldórsslöð-
um, gekk hann að eiga fyrri konu sína, Helgu
dóttur síra Jóns Austmanns. Hún var kvenkostur
góður og þó heilsulítil mjög. Flutlusl þau hjón að
Stórutungu í Bárðardal vorið 1872 og fóru að búa
þar. En á fyrsta ári þeirra í Stórutungu dó Helga.
Tregaði Baldvin hana mjög. Pau höfðu eignast 2
börn, er bæði dóu á 1. ári.
Eftir fráfall Helgu bjó Baldvin með móður sinni
í Stórutungu, þar til vorið 1875, er hann gekk að
eiga eflirlifandi konu sína, Guðnýju Jónsdóttur frá
Pverá i Laxárdal. Giftust þau að Pverá það vor
og fór Guðný þá að Stórutungu og tók þar við
búsforráðum. Bjuggu þau þar 2 ár, eða til vors-
ins 1877. Þá flutlust þau að Garði í Aðaldal og
bjuggu þar siðan rausnarbúi 37 ár.
Guðný er fædd að Þverá í Laxárdal 22. sept-
ember 1847. Foreldrar hennar voru hinn þjóð-
kunni fyrirmyndarbóndi Jón hreppstjóri Jóakims-
son á Þverá og fyrri hona hans Herdís Ásmunds-
dóttir bónda á Stóruvöllum í Bárðardal, Davíðs-
sonar bónda sama staðar. Kona Ásmundar var
Guðný Jónsdóttir bónda á Mýri í Bárðardal, en
kona Davíðs og móðir Ásmundar var Herdís Ás-
mundsdóttir bónda í Nesi
í Höfðahverfi, er var
langafi Einars alþingis-
manns í Nesi. Guðný í
Garði er því alsyslir
Benedikts frá Auðnum
og Snorra hreppstjóra á
Þverá í Laxárdal1).
Garður í Aðaldal hefur
lengi verið talinn ein liin
besta og friðasla jörð
hjer um sveitir. Pá jörð
hafði Jón Jóakimsson á
Pverá átt, áður en hún
kom í eigu Baldvins.
Fjekk Baldvin hana fyrst bygða sjer af tengda-
föður sínum en síðan keypta. Garður hefur tekið
miklum umbótum, síðan Baldvin kom þangað.
Sýndi það sig brált að hann kunni góð tök á
jörðinni. Naut hann og þar að trúrrar og öruggr-
ar liðveislu hinnar ungu konu sinnar, er vanist
hafði í föðurgarði atkvæða-heimilisstjórn í öllum
greinum. Ávann Guðný sjer brátt, engu síður en
Baldvin, álit og vinsældir bæði lieimilisfólks síns
og nágranna og gerðist hin umhyggjuríkasta og
1) Viðvikjandi ættum Guðnýjar i Garði nægir að öðru leyti að
skýrskota til G. tbl. »Óðins« 1910, þar sem raktar eru ættir þeirra
Stóruvallalijóna, Jóns Bencdiktssonar og Aðalbjargar Pálsdóttur i
ævnninningu þeirra eftir Hermann Jónasson, — þ'i að Jón á Stóru-
völlum var hálfbróðir Herdisar, inóður Guðnýjar (sammæðra), en þær
Aðalbjörg á Stóruvöllum og Guðný bræðradætur. Pó verður þess að
gæta, að sú villa heíur einhvernvegin slæðst inn i þá ætfærslu, að
Guðný kona Benedikts á Stóruvöllum en móðir þeirra Ilerdisar As-
mundsdóttur og Jóns Benediktssonar (hún var tvigift) var ekki systir
Sigurðar á Gautlöndum, föður Jóns alþingisforseta Sigurðssonar, eins
og þar er talið, lieldur bróðurdóltir hans, eða með öðrum orðum:
Jónsdóttir bónda á Mýri i Barðardal, Jónssonar bónda sama staðar,
Ilalldórssonar. — Ennfremur er það rangt, að Indriði, föðurfaðir
Jóns á Stóruvöllum, byggi á Torfastöðum i Fnjóskadal. Sá bær er
ekki til og mun vera prentvilla fyrir Fornastöðum. Höf.
Baldvin Sigurðsson. Guðný Jónsdóttir.