Óðinn - 01.01.1920, Blaðsíða 29
ÓÐINN
29
og eina stúlku. Þau búa skamt frá »Lundar« í
Álftavatnsbygð.
2. Vilhjálmur, fæddur 7. jan. 1889. Ogiftur,
hefur unnið um mörg ár á pósthúsinu í Winnipeg.
3. Friðsteinn, fæddur 29. apr. 1896, ógiftur,
vinnur við verslun.
4. Kristján, fæddur 14. júní 1898, ógiftur, gjald-
keri við Domionbankann í Winnipeg.
5. Wolfgang, fæddur 6. mars 1902, ógiftur,
bankaritari við Unionbankann í Winnipeg.
6. Jónína Lilja, fædd 6. okt. 1892, gift Guðmundi
R. Stefánssyni blýsmið (Plomber) í Winnipeg.
7. Emilía, fædd 26. nóv. 1894, gift Halldóri
Baldvin gullsmið í Winnipeg, hafa þau eignast
eina dóttur.
8. Halldóra, fædd 26. okt. 1893, ógift, vinnur í
hljóðfærasölubúð í Winnipeg, og nemur sönglist líka.
Jeg hef beðið Jón Friðíinnsson að segja mjer
eitthvað um æfiferil sinn, og lífsstarf, að þvi er
söngfræðina snertir. Svar hans er sem hjer á eftir
segir:
»Pegar jeg kom til þessa lands var jeg allvel
læs, og ofurlítið byrjaður að draga til slafs. Dálít-
inn hluta úr vetrinum 1879 gekk jeg á frískóla,
sem Sigtryggur Jónasson stofnaði við íslendinga-
fljót, og um tveggja mánaða tíma geklc jeg á
skóla i Winnipeg 1882, sem íslendingar veittu
forstöðu. Pað er öll mín skólaganga.
Jeg var þegar i æsku bókhneigður, sjerstaklega
hafði jeg gaman af skáldskap, og las alt, sem jeg
gat náð í, af því tægi. En mest af öllu þráði jeg
að læra söngfræði, en það gat jeg ei þá. Jeg varð
að »vinna úl« til þess að hjálpa foreldrum mínum
eftir mætti. Pó tókst mjer að komast niður í
almennum söngfræðisreglum, og 1888 eignaðist
jeg lítið orgel og notaði nú hverja stund, er jeg
gat til þess mist, til að læra að spila á það, þó
enginn væri kennarinn, og árangurinn varð sá, að
jeg var kosinn orgaristi við kirkju Argylesafnaðar
árið 1896, og hjelt því starfi þar til jeg fluttist til
Winnipeg 1905. Um 1895 byrjaði jeg að læra hina
hærri söngfræði (harmony) og hjelt því áfram
mörg ár, tók jeg þá af og til »lexíur« með pósti
hjá tónfræðingum, bæði i Canada og Randaríkjun-
um, er sú kensluaðferð, eins og þú veitst, notuð
hjer í ýmsum greinum, af mörgum sem skortir
efni til skólagöngu. Og síðast var jeg hálft annað
ár hjá hinum ágæta og víðfræga tónsnillingi Rhys
Thomas í Winnipeg, og á jeg honum margt og
mikið að þakka fyrir hans ágætu kenslu og leið-
beiningar. Lög þau, er jeg hef samið, munu vera
um 60 að tölu og hafa 25 af þeim verið prentuð,
og eru þau þessi:
»12 sönglög« 1904. »Vögguljóð« 1913. »Jólavísur
til íslands« 1916. »Þótt þú langförull legðir« 1917,
öll prentuð sjerstök. í blöðum og tímaritum hafa
verið prentuð: »Vorvísur« og »Þú litli fugl á
laufgri grein«, í Eimreiðinni. »Herför« og »Þú
nafnkunna landið«, í Lögbergi. »Sumar«, »Vor-
dísin« og »Canada«, í Heimskringlu. »Jól«, í Freyju.
»Vormenn íslands«, í Framtíðinni. »Hver er altaf
uppgeíinn«, í Voröld.
Ekki má jeg gleyma því, þegar um þetta efní
er að ræða, að geta þess, að konan min hefur
ált ekki svo lítinn þált í því, að hjálpa til þess
að mjer væri unt að gefa mig eins mikið við
sönglistinni eins og jeg hef gert. Hún hefur tekið
af mjer svo margt verkið sem jeg hefði átt að
gera og aukið því við önnur störf sín, og fæ jeg
henni það aldrei að fullu þakkað nje launað«.
Pví skal hjer við bætt, að Jón hefur nú um
nokkur ár sagt unglingum til í söng og hljóðfæra-
slætti, bæði í Álltavatnsbygð, Sigluness og Nar-
rowsbygð og Nýja íslandi, og hefur þessi kensla
hans eflaust orðið til þess að auka og efla bæði
þekkingu og fegurðartilfrnningu nemendanna, þeirra
er kunna að færa sjer það í nyt.
Jón mun hafa i hyggju, að láta prenta lög þan
er hann á óprentuð, svo fljótt sem ástæður leyfa,
og munu í því safni eflaust vera mörg lrans
fegurstu lög.
Af því jeg hef enga söngfræðisþekkingu, til að
dæma um tónskáldskap Jóns Friðfinnssonar, þá
hef jeg beðið Rhys Thomas kennara hans að láta
mjer í tje skoðun sína um tónskáldskap Jóns, og
fjekk jeg frá honum svohljóðandi svar:
»Herra Jón Friðfinnsson hefur ágæta tónskálds-
gáfu. Mörg lög hans bera vott um mikinn frum-
leik og fegurðarlilfinningu. Ef hann hefði átt þess
kost að beita öllu lífsstarfi sínu óskiftu í þarfir
sönglistarinnar, er jeg þess fullviss að honurni
hefði verið skipað á bekk með þeim lónsnilling-
um, sem skapáð liafa þau verk er langt eru fyrir
ofan það sem alment er framleitt í tónlistinni.
Rhys Thomas.a
Pess vil jeg geta að Rhys Thomas er útskrif-
aður frá söngskóla í Suður-Wales á Englandi, og
hefur unnið sjer verðlaun sem tónskáld. Hann er
talinn einn hinn allra besti söngkennari hjer um
slóðir. Ilefur kent söngfræði í Winnipeg um 20 ár.