Óðinn - 01.01.1920, Page 45

Óðinn - 01.01.1920, Page 45
ÓÐINN 45 morphismus) í samanburði við sömu hluti, er virt- ir eru fyrir sjer með innri augum! Innri sjónin er miklu merkilegri að því leyti, að þar gætir miklu meira persónueinkenna einstaklingsins en við ytri sjón. Augu líkamans eru viðtakendur ytri áhrifa, augu sálarinnar eru skapendur, er vinna úr efni hins ytra heims. Goethe segir frá þessari innri sjón: Ef jeg lokaði augunum og draup höfði og hugsaði mjer blóm í miðju sjáaldrinu, breyttist blómið fljótt, breiddi út blöð sín og ný blóm sprungu út úr hinu, og voru blöð þeirra allavega lit, stundum græn; þetta voru engin náttúrleg blóm, heldur undrablóm, en voru samt regluleg eins og rósaskraut myndhöggvaranna. Ómögulegt var mjer að komast fyrir, hversu þetta varð, en jeg gat haldið mynd þessari fastri eins lengi og jeg vildi og var hún altaf jafnljós. Eins fór, ef jeg hugsaði mjer marglita málaða rúðu, að þá breytt- ist skrautið og hvarflaði frá miðju til útjaðarsins líkt og fagurmyndasjá (Kaleidoskop), er fyrst var fundin upp á vorum dögum. — Endurminning og skapandi ímyndunarafl, skilningur og hugmynd (BegriH und Idee) starfa hjer í sameiningu.« — Minnir þetta á lýsingu þýska skáldsins Novalis á bláa blóminu, er varð tákn og ímynd hugsæis- stefnunnar. Sögumaðurinn, Heinrieh, segir frá draum, er í raun og veru er ekki annað en innri sýn skáldsins Novalis: Var hann (Heinrich) staddur á mjúku grasi nálægt lind einni, er rann upp i loft og virtist þar verða að engu. Dimmbláir klettar með ýmislega litum rákum voru þar skamt frá. Dagsljósið í kringum hann var bjarlara og mild- ara en venjulega. Himininn var svartblár og tand- urhreinn. En einkum heillaðist hann þó af háu ljósbláu blómi, er stóð nálægt lindinni og sem kom við hann með breiðum, gljáandi blöðum sín- um. Hann ætlaði að ganga nær, en þá byrjaði blómið alt i einu að hreyfast og breytast. Blöðin báru meiri ljóma og vöfðust inn að stönglinum, er óx. Blómið hneigðist að honum og blöðin breidd- ust út og voru bláleit og sá hann þá undurfagurt andlit í blómbikarnum — þá vaknaði hann. — Víða í skáldskap gætir og þessarar innri sýnar. Prestur einn, George Henslow, er Galton segir frá, skýrir frá sjónarfyrirburðum sínum. Hann lokar augunum og hugsar sjer ekkert, biður eftir að myndirnar komi. Myndirnar koma og breytast og stundum tekst honum með viljakrafti sínum að sameina myndbreytingarnar, þannig að upphaf og endir renni saman. Einu sinni sjer hann boga, rjett á eftir ör, þá kemur hönd á ósýnilegri persónu, er skýtur örina af, alt loftið fyllist af örvadrífu, sem verður að stjörnuhrapi og snjófalli; snjór er yfir öllu, prestssetur þakið snjó birtist;;þá er alt í einu komið vor, sólin skín á túlípanareit, er presturinn kannast við frá æskudögum; túlípan- arnir hverfa, einn eftir annan, uns sá síðasti verð- ur tvöfaldur, blöðin falla af; duftberinn er eftir og þrútnar allur og vaxa á honumThorn, erTfá á sig allavega Iögun, bor, nagli, óþekkjanlegar mynd- ir, er loks líkjast boganum í byrjun sýnarinnar. — Kemur þessi breyting (tnelamorphose) hlutanna einnig fram í málverkum listamannanna; þeir mála tímann, sýna röð viðburða, en ekki aðeins augna- blik, eins og gamla listin. Á mynd eftir Carl Mense (5. mynd) snúa húsin silt á hvað, af því að maður á bát, er vaggast á öldum, sjer húsinþannig Á þessu sjáum vjer, samkv.skoð 5. mynd. unum inn- sýnismanna, mismuninn á gömlu listinni og þeirri nýju. Vjer erum vanir að treysta augum líkamans og skiljum því ekki þá málara, sem mála eftir innri sjón. Augu vor eru eins og gluggi, sem heimurinn horf- ir í gegnum. Vjer erum aldir upp í list, er sogar að sjer öll ulanaðkomandi áhrif. En nú krefst innri sjónin síns rjettar, maðurinn er ekki eintóml bergmál veraldarinnar, heldur máske drotnari henn- ar, eða að minsta kosti jafnsterkur og veröldin. Innsýnislistin krefst þessara rjetlinda, hún fordæm- ir áhrifastefnuna og afneitar þvi að nokkru leyti náttúrunni; er hún því einhliða, ekki nema hálf- ur sannleikur. Sjáaldrið þarf að verða fyrir áhrif- um, til þess að menn sjái, og geta þessi áhrif eins komið innan að einsog að utan. Augað býr til mynd af því, er vjer sjáum, en hvort sem áhrifin koma utan að eða að innan, hefir augað aðeins ljósstilfinningu og lita. Ef vjer Iokum augunum og sjáum þoku, geisla, ljós, kúlur, rákir o. s. frv., er þetta í raun og veru ekki annað en áhrif annara

x

Óðinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Óðinn
https://timarit.is/publication/205

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.