Óðinn - 01.01.1923, Síða 21
ÓÐINN
21
Hoffellsbræöur.
(Að mestu eftir handriti ]óns prófasts
Jónssonar á Stafafelli).
Hjer koma myndir af þremur bræðrum í Austur-
Skaftafellsþingi: ]óni eldra (f. 20. okt. 1842), Eiríki
(f. 13. jan. 1844) og ]óni yngra (f. 11. des. 1845),
sonum Guðmundar óðalsbónda Eiríkssonar og konu
hans Sigríðar ]ónsdóttur frá Hlíð í Skaftártungu,
]ónssonar og Ragnhildar Gísladóttur frá Geirlandi á
Síðu, sbr. »Sögur frá Skaftáreldi«. Guðmundur var
bróðir Stefáns alþm. Eiríkssonar í Arnanesi í Nesjum
(d. 1884), en sonur
Eiríks hreppstj. Bene-
diktssonar og Þórunn-
ar ]ónsdóttur, sýslu-
manns Helgasonar að
Hoffelli í Nesjum. IV\un
hann hafa gengið að
eiga Sigríði árið 1839
og bjuggu þau alla
æfi upp frá því að
Hoffelli. Sigríður dó
1878, og var þá fyrir
skömmu andaður Ei-
ríkur bróðir hennar
hreppstjóri í Hlíð, d.
31. des. 1877. Guð-
mundur bóndi dó
1898. Var 50 ára
búskaparafmælis hans
minst haustið 1889, meðal annars á þessa leið:
„ Hann vann með vænum svanna þau áttu arfa fríða
að verlri köllunar. það er að slíkum Ieit; -
Þau hlutu hylli manna sem bjarkir brekkur skrýða,
og heiður alstaðar; þeir bænda pryða sveit1).
Þeir bræður eru allir atgervismenn, fríðir sýnum og
föngulegir á velli, hagleiksmenn miklir og vel að sjer
um margt, greiðamenn og gestrisnir.
]ón eldri eignaðist Þinganes (í Nesjum) með konu
sinni Katrínu ]ónsdóttur og bjó þar síðan; var hann
atorkumaður mikill, góður smiður og gagnsamur
mörgum. Hann var blindur síðustu ár æfinnar, en þó
í fullum burðum að öðru leyti, er hann ljetst 13. maí
1916. Er Katrín einnig látin fyrir nokkru. Þau hjón
áttu fjóra sonu, er upp komust: Guðmund bónda í
Þinganesi, er druknaði í Hornafjarðarfljótum 21.
lón Ouðmundsson, eldri.
ágúst 1909, ]ón bónda á Arnhólsstöðum (Arnalds-
stöðum) í Skriðdal, Benedikt verslunarmann (dó á
Akureyri) og Gunnar, er nú býr í Þinganesi.
Eiríkur hefur búið á ýmsum stöðum: Heinabergi á
Mýrum, Svínafelli, Borgum og Meðalfelli í Nesjum,
Brú á ]ökuldal (1890—1904), og nú síðast í Syðra-
Firði í Lóni. Um þennan bústað sinn hefur hann
kveðið þetta:
„Mikaels- frá -messudegi Lengi að þreyja’ f þessum skugga
miðrar Góu til þykir ýmsum hart,
í Syðra-Firði sólin eigi samt er á mínum sálarglugga
sjest það tímabil. sæmilega bjart".
Eiríkur var fyrrum hreppstjóri í Nesjum og líka
Eiríkur Guðmundsson.
]ón Guðmundsson, yngri.
nokkur ár á ]ökuldal, og fleiri trúnaðarstörf hefur
hann haft á hendi, enda ágætur skrifari og mjög vin-
sæll sem þeir bræður allir og vel metinn, alstaðar
þar sem hann hefur átt heima. Hann er hagmæltur
vel og svo tígulegur ásýndum, að fáir munu hans
líkar; skýr og skemtinn í viðræðum. Hefur giktveiki
nokkuð bagað hann hin síðari árin og fótarmein tók
hann á besta skeiði og ber þess jafnan merki.
Brá hann búi fyrir nokkru og fluttist til dóttur
sinnar á Djúpavogi, frú Guðlaugar. Eiríkur var
kvæntur Halldóru ]ónsdóttur í Heinabergi, en hún
er nú dáin fyrir mörgum árum (að Brú). Af börnum
þeirra komst að eins eitt upp, en það er frú Guð-
laug, kona Elíasar verslunarstjóra ]ónssonar á Djúpa-
vogi.
]ón yngri hefur ávalt búið á ættleifð sinni að Hof-
felli og gert þar stórmiklar jarðabætur, enda verið
mestur búmaður þeirra bræðra og stundað þó stöð-
►
1) Úr afmaelisljóðum síra )óns á Stafafelli.