Óðinn - 01.01.1923, Page 30
30
ÓÐINN
Hallgrímur Kristinsson framkvæmdastjóri.
Fæddur 6. júlí 1876, — dáinn 30. janúar 1923.
Eftirmæli.
Vaxti þig vel
og vilja þínum
eld og andvara gaf
Einars athygli,
áræði Glúms —
ljónhugur landnámsmanns.
Bros og bjartsýni
og bróðurkærleik
gaf þjer á guðsifjastund
sólrík sveit,
er sílgræna jörð
lætur í andvara anga.
Greinar guðspeki
geisli sólar
flytur firði og sveit;
veitist vöggugjöf
varla betri
manni en löggjöf ljóss.
Arfur þinn allur
var áhuga-glóð;
löngun til landnáms horfði,
dáð til drengskapar,
dugur til starfs,
fullhugi til friðar.
Bar fyrir brjósti
brautryðjandi
almennings'auðnu og gagn,
þessvegna þjer
þökk og hlýja
fylgja heiman heim.
Fellur forsprökkum
fast á móti
stormur og straumröst þung.
Engin andviðri
áttavita
vinna þó geig nje grand.