Óðinn - 01.01.1923, Qupperneq 36
36
ÓÐINN
Eiríkur Briem prófessor var formaður trá byrjun og
Ben S. Þórarinsson gjaldkeri þess, en þriðji maður í
stjórn þess var fyrst Jón Olafsson sjálfur, en síðar
Þorsteinn Gíslason ritstjóri.
Þegar Jón Olafsson fjell frá, var töluvert til af
handriti fullbúið til prentunar, en útgáfukostnaður
hafði þá stórum aukist frá því, sem áður var, og
treysti fjelagið sjer ekki til þess að halda útgáfunni
áfram, nema styrkur fengist til hennar, og sótti um
hann til Alþingis. En styrkurinn fjekst ekki. Var þá
fjelaginu slitið 20. nóv. 1920 og jafnframt ákveðið, að
eignum þess skyldi varið til myndunar minningarsjóðs
um Jón Olafsson. Síðan var skipulagsskrá samin,
og er hún svohljóðandi:
„Minningarsjóður Jóns Olafssonar alþingis-
manns er stofnsettur með ályktun aðalfundar
Orðabókarfjelagsins h.f. 20. nóv. 1920, og legst
til hans eign fjelagsins í peningum, ógreiddum
skuldum og bókaleifum.
1. gr. Peningar sjóðsins skulu setjast á vöxtu
í aðaldeild Söfnunarsjóðs Islands, og legst þar
við þá það, sem borgast af ógreiddum skuldum
og verð fyrir seldar bókaleifar.
2. gr. Vextir skulu allir leggjast við höfuð-
stólinn til ársins 1949, en af vöxtunum fyrir það
ár og hvert eftirfarandi ár skal helmingurinn
árlega falla til útborgunar, en hinn helmingur
vaxtanna leggist jafnan við höfuðstólinn.
3. gr. Vöxtum þeim, er koma til útborgunar,
skal verja til að efla og útbreiða þekkingu á
íslenskri tungu.
4. gr. Prófessorinn í íslenskum fræðum við
háskóla Islands tekur vexti þá, er árlega falla
til útborgunar, og ver þeim í samráði við ís-
lenskukennara hins almenna mentaskóla svo sem
þeim á hverjum tíma þykir best fullnægja til-
ganginum, samkvæmt 3. gr.
A aldarafmæli Jóns Olafssonar, 20. mars 1950,
skal í fyrsta sinn ákveða, hvernig vöxtunum
skuli varið.
5. gr. Auglýsa skal á ári hverju, eftir að út-
borgun vaxta er byrjuð, hvernig vöxtunum er varið.
6. gr. Omakslaun fyrir ráðstöfun útborgaðra vaxta
má taka af þeim, ef stjórn háskólans samþykkir það«.
Þessi skipulagsskrá hefir hlotið konunglega stað-
festingu.
Það, sem til var af handbæru fje, hefur verið lagt
í Söfnunarsjóðinn.
Til þess að auka sjóðinn, kom stjórn fjelagsins
saman um, að gefa þeim, sem síyðja vildu minningar-
Læt jeg svo þessum minningarorðum lokið með þeim um-
um að lokum, að minning allra þessara látnu, sem „spanska"
drepsóttin deyddi hjer, er og verður öllum kunnugum góð og
kær, og Drottinn er beðinn að gleðja og farsæla sálir þeirra,
eins og allra annara, sem horfnar eru hjeðan inn í annan heim.
Ófeigur Vigfússon.
SL
Minningarsjóöur
Jóns Ólafssonar.
Jón Ólafsson.
Jón Ólafsson rithöfundur og skáld andaðist, eins
og menn muna, frá verki því, sem hann hafði helgað
starf sitt síðustu æfiárin, er það var að eins stutt á
veg komið, en það var samning íslenskrar orðabókar.
Hann vann að orðabókinni fyrir styrk af landsfje, en
útgáfuna kostaði fjelag, sem stofnað var með þeim
tilgangi 3. apríl 1912 og nefndist »Orðabókarfjelagið«.
Voru fjelagar 25 og gáfu út tvö hefti af orðabókinni.