Óðinn - 01.01.1923, Síða 44
Nýlega hefur Gustav Vigeland, helsti mynd-
höggvari Norðmanna nú, gert líkneski af
Agli Skallagrímssyni, og sýnir hann, er hann
reisir níðstöngina á eynni Herðlu til hefnda
við Eirík konung blóðöx og Gunnhildi drotn-
ingu. Þetta líkneski er sýnt hjer á mynd-
unum.
Þegar þetta gerðist, hafði konungur gert
Egil útlægan úr Noregi. Hafði Egill farið til
Noregs til þess að kalla eftir erfðafje konu
sinnar, en fjekk eigi náð því og taldi sig
ólögum beittan af Eiríki konungi, en lenti út
af þessu í vígaferlum. Og er skip hans voru
búin til Islandsferðar, gekk hann á land í
eynni Herðlu við Norður-Hörðaland og rændi
þar bú konungs. En að því búnu reisti hann
níðstöngina, og segir svo frá þvi í sögunni:
» . . . Hann tók í hönd sjer heslistöng ok
gekk á bergsnös nökkura, þá er vissi til
landsins. Þá tók hann hrosshöfuð ok setti
upp á stöngina. Síðan veitti hann formála ok
mælti svá: »Hjer set ek upp níðstöng ok sný
ek þessu níði á hönd Eiríki konungi ok
Gunnhildi drotningu — hann sneri hross-
höfðinu inn á land — sný ek þessu níði á
landvættir þær, er land þetta byggja, svá at
allar fari þær villar vegar, engi hendi eða
hitti sitt inni, fyr en þær reka Eirík konung
ok Gunnhildi ór landi«. Síðan skýtur hann
stönginni niður í bergrifu ok ljet þar standa.
Hann sneri ok höfðinu inn á land, en hann
reist rúnar á stönginni, ok segja þær formála
þennan allan. Eftir þat gekk Egill á skip... «
Þetta gerðist árið 933 og Egill var þá 33
ára gamall. I norsku blaði, »Aftenposten«,
sem flytur lýsingu á Iíkneski Vigeland, eftir
Hans Dedekam, segir: »Egill Skallagrímsson
var, svo sem kunnugt er, afbragðsskáld á
sinni tíð og einn af stórfenglegustu mönnum
víkingaaldarinnar. Sagan um hann er eitt af
meistaraverkum hinna norrænu bókmenta«.
Og svo er þar lýsing á útliti hans, eftir sög-
unni; en þar segir svo: »Egill var mikilleitur,
ennibreiður, brúnamikill, nefit ekki langt, en
ákafliga digurt, granstæðið vítt ok langt,
hakan breið furðuliga, og svá alt um kjálk-
ana, hálsdigur ok herðimikill, svá at þat bar
ÓÐINN
Líkneski
Egils Skallagrímssonar
reist í Noregi.