Tímarit Hins íslenzka bókmentafélags - 01.01.1880, Síða 22

Tímarit Hins íslenzka bókmentafélags - 01.01.1880, Síða 22
22 nema einhver komi upp með það, að þau séu ort í Normandí, og svo enn einn að þau sé frá Sikiley; þá er sjöundin komin: „septem itrbcs certcmt-í. Að fara nákvæmlega út í þetta stríð um uppruna Eddukviðanna, eða hvar þau muni í fyrstu ort vera, er ekki til neins, og hefir ekkert upp á sig. jþað er búið að segja og rita um þetta svo mikið, sem allir vita, en eg get ekki kallað það neina verulega vísinda- lega rannsókn, sem ekki byggist á neinu öðru en get- gátum og hugarburði. jþetta á sér nú einmitt stað í forspjallsritinu; þar er alt ..no doubf' [vafalaust], „we can fancy“ [vér getum ímyndað oss], „we belteveLÍ [vér ætlum], „a strong opiniori^ [mikil líkindi], og þarfram eptir götunum; og það er ekki nóg með það, heldur tínir höfundurinn fram einstöku óvalda staði af handa hófi með tómu gjörræði og valdboði, sem allir skulu trúa, og alt þetta er gjört með þeirri hroðvirkni og þeim flýti/sem engum getur dulizt, þeim er forspjalls- ritið les. 1 „Gefn“ 1872 bls. 21—270^29-—-32 hefi eg safnað öllum þeim stöðum, sem sýna samband Eddu- kviðanna innbyrðis og skyldleika þeirra við önnur kvæði, og það hefir enginn annar gjört áður; en þessir staðir, sem eg hefi tilfært þar, eru þegjandi vottar, sem eng- inn getur hrakið með ástæðum, en það má mótmæla öllu með gjörræði. ,,þ>að eina, sem er áreiðanlegt, er, að íslendingar hafa ritað og geymt kviðurnar“; vér vitum ekkert til þeirra nema frá íslandi. Höfundurinn tekur fram, að fjöldi af vestrænum (keltneskum) orðum og nöfnum komi fyrirí Eddukvið- unum og nafnaþulunum — það er alveg satt, en hvað sannar það? Vér vitum vel, að Islendingar höfðu sam- göngur við Suður-eyjar, það þarf enginn að segja oss. Á bls. 20 talar hann um keltneska „Literatur“, sem hann segist ætla að tala um seinna (a matter which must be touched on later), en vér höfum hvergi getað fundið

x

Tímarit Hins íslenzka bókmentafélags

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit Hins íslenzka bókmentafélags
https://timarit.is/publication/228

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.