Tímarit Hins íslenzka bókmentafélags - 01.01.1880, Blaðsíða 53
53
sé hefði tekið við öllu með gfóðum skilum, sem stóln-
um bæri“, var ekkjufrú Sigríður dæmd til þess að greiða
86 hundr. og 30 al., auk þess sem hún þegar var búin
að gjalda í ofanálag, og þar á ofan 50 hundr., eða 60
rd., i málskostnað, en Brynjólfur Thorlacius var fyrir
innihald reikningsbókar þeirrar eptir nafna sinn, sem
hann þá fyrst lagði fram fyrir rétti, dæmdur til að
greiða frú Vídalín go rd. og til að láta af hendi ýmsa
gripi, sem kirkjan átti, en í hans vörzlum voru. f>ví
næst tók Brynjólfur Thorlacius við 50 hundruðum í
Teigi, en lét í staðinn Meðalfell i Kjós (60 hundr., og
10 hundruð í annari jörðu, sbr. Finn. Joh. Hist. eccl.
III,700-—701). Máafbréfum Jóns Árnasonar um þetta
leyti sjá, hversu mikið honum hefir verið niðri fyrir
útaf þessari úttekt. í bréfi til Árna prófessors Magn-
ússonar, dags. 11. ágúst 1723, kemst hann svo að orði:
„-----Eg þakka yður, herra assessor, fyrir tilstyrk-
inn með þorkötlustaði, og var það nóg, að hústrú
Sigríður (Vídalin) rýmdist burt úr Grindavík með sitt
violentum imperium. Veleðla amtmaðurinn (Fuhr-
mann) og eg, með öðrum tilkölluðum gjörðarmönn-
um, vorum á Stóra-Núpi hjá frú Sigríði, þegar bréfin
komu af Eyrarbakka um þetta. Stiftsbefalningsmað-
urinn hafði gefið þá commissíón amtmanninum, að
tala út á milli okkar um þorkötlustaði, hvað hann
°g gjörði og var temmilega ýfrugur uppá mig, því
eg skil hann hafi verið hræddur um það, að eg muni
hafa gefið eitthvað an ámóti hans erklæringu uppá
súpplíkatíu hústrúarinnar um það, hvert J>orkötlu-
staðir mætti missast frá stólnum; so mátti eg endi-
lega neyðast til að fá hústrúnni aptur Herdísarvík,—
— og 2 jarðir í hreppnum, því hún vildi ekki hugg-
ast með minna, og uppber hún so 20 álnum meira
af þessum jörðum, en eg af forkötlustöðum, og er
pað' vel, pví hún er ekkja. Eg vildi óska hún vceri