Tímarit Hins íslenzka bókmentafélags - 01.01.1880, Síða 23

Tímarit Hins íslenzka bókmentafélags - 01.01.1880, Síða 23
23 neitt um þetta efni í forspjallsritinu. Ef höfundurinn hefði gefið sér tóm til að hnýsast eitthvað í keltnesk kvæði, þó ekki væri nema Taliessin eða Merdwin, þá mundi hann finna, að alt þess konar er svo ólíkt Eddu- kviðunum og öllum fornkvæðum vorum, bæði að formi og innihaldi, að ekki getur verið um nokkra samlík- ing að tala. Vér getum raunar ekki neitað því, að samganga Norðmanna og íslendinga við Keltana hafi haft nokkur áhrif, en þau voru mjög lítil í samanburði við alt hitt, sem vér þekkjum um fornlíf vort, og þau dæmi, sem höf. kemur með, eru í rauninni mjög fá og öll á stangli. J>að sannar ekkert, þótt einhver hafi samansett örnefna- og fugla-þulur; þetta get eg elcki kallað neinn lífsanda, sem gangi í gegnum eða grípi inn í alla heild fornaldarinnar. þ>ar að auki er eigi unt að sanna neitt eða segja neitt áreiðanlegt í þessu efni. það lítur jafnvel út sem sálarlegur afkára- skapur (psychologisk Absurditet), ef aðrir en íslending- ar hefðu ört þulurnar um árnar. f>að eru taldar upp eintómar erlendar ár, einnig norskar og sænskar, en engin íslenzk. Engu skáldi mundi hafa dottið í hug að telja upp ár síns eigin lands, en hið útlenda þykir mönnum þörf á að telja upp. Enginn íslendingur hefir heldur saman sett íslenzk eyjanöfn; en þetta eðli eða þörf andans, að vilja endilega minnast á og draga fram hið erlenda og annarlega, það er einmitt psycho- logisk sönnun fyrir því, að Islendingur, en enginn Norðmaður, hefir einnig sett saman eyjaþulurnar (Snorra Edda ed. Arna-Magn. Vol. II, 493—494). Sama erað segja um fuglaþulurnar og fleiri þulur. Mörg örnefni geta verið komin frá Bretlandseyjum inn í þessarþul- ur, en vér munum þó geta sýnt að minnsta kosti eins mörg nöfn, sem eru tekin annarstaðar frá, og það vita allir, hversu víðförulir Norðmenn og Islendingar voru, og að þeir fengu hugmyndir sínar víða frá, bæði

x

Tímarit Hins íslenzka bókmentafélags

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit Hins íslenzka bókmentafélags
https://timarit.is/publication/228

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.