Tímarit Hins íslenzka bókmentafélags - 01.01.1880, Side 24

Tímarit Hins íslenzka bókmentafélags - 01.01.1880, Side 24
 24 úr austri, vestri og suðri; en einmitt af því sjá og allir, hversu rangt það er, að einstrengja alt við Kelta og Vesturlönd, eins og þeir hafi hvergi komið nema þang- að, eins og heimurinn haíi hvergi verið nemaþar. Að vér tökum eitt eða tvö dæmi: hver getur sannað, að Kerlaug sé fremur Kerloch á Englandi, eins og höf. segir, heldur en Kerálá á Finnlandi? og hver getur sannað, að hið norræna nafn Kerlaug sé afleitt úr öðru máli, en ekki frumnafn? Hver getur sannað, að Rígr sé fremur hið keltneska Righ, heldur en hið gotneska Irinc—Eirik, eins og J. Grimm hélt? „Hríð sigmána“ er orrusta; en hver veit, hvort „sigmáni“ merkir skjöld, eða það er norrrænað úr „Sigemon" = Sigmundr (Oð- inn, sbr. Finn Magnússon í Lexicon mythol. bls. 643 og Gefn 1872 I bls. 12)? Og nú hér á ofan, hvaðan eru þessi hin keltnesku orð komin? eða er keltneska frummál úr Paradís? Hvað örnefnunum viðvíkur, þá gátu íslendingar og Norðmenn vel gefið þessi nöfn f einmitt sjálfir, og Bretar (Keltar) afbakað þau síðan, eins og Englar afbökuðu Skarðaborg í Scarborough, Suðrvirki í Southwark, Hvarf í Wrath, að eg ekki nefni öll nöfnin á Orkneyjum, sem P. A. Munch hefir sögulega. rakið til Norðmanna; og S. Bugge hefir í hinni ofannefndu ritgjörð sinni sýnt fram á, að mörg þau örnefni, sem Guðbrandur álítur keltnesk, séu ein- mitt norsk að uppruna, þótt það hafi komið fyrir ekki (t. a. m. með Nið, Aarb. 1. c. p. 221, Prolegomena, bls. 188). Sá tími er fyrir löngu liðinn, þegar menn ætl- uðu að leiða alt af Keltum, og hugsuðum vér, að höf. mundi vita það. En svona er það : Multa renascuntur quae iam cecidere! f En hér kemur nú annar aðalpunktur quaestionis. Hin norrænu ríki á Bretlandseyjum voru engin stjórnlega né þjóðlega staðfest ríki, enda áttu þau eigi löngum aldri að fagna; þau liðu brátt undir lok, því

x

Tímarit Hins íslenzka bókmentafélags

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit Hins íslenzka bókmentafélags
https://timarit.is/publication/228

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.