Tímarit Hins íslenzka bókmentafélags - 01.01.1880, Qupperneq 36
36
getur búandinn unnið í hjáverkum, eða þegar engin
sérleg arðvinna er fyrir hendi, svo hann finnur miklu
minna til kostnaðarins við vinnu þessa en marga aðra,
og þó sléttar hann með þessu lagi dagsláttuna á 4 ár-
um, oghefir ffam af því árlegan hreinan arð af vinnu
þessari, ekki minni en sex hesta af góðri töðu og verk-
sparnað, sem nemur sjálfsagt, minnst í lagt, einu dags-
verki fullvinnandi karlmanns og kvennmanns, og þar
að auki annan hag við vallarávinnslu og heyþurkun.
Hinn hreina árlega arð af hverri dagsláttu, sem er
vel sléttuð og fullgróin, tel eg í meðallagi þennan:
6 hesta (960 pd.) góðrar töðu .... 24 kr.
1 dagsverk karls og konu á túnaslætti, 5 —
Aðra hægð fyrir sléttuna............ 1 —
Samtals 30 kr.
Eptir 20 ára búskap er búandinn búinn að slétta
5 dagsláttur, og fær sjálfsagt 30 hestum meira af tún-
inu á hverju ári, en hann fékk upphaflega, og sparar
sér fullgildan kaupamann og kaupakonu í 5 daga, og
þetta tel eg 120 -j- 30 =■= 150 kr. hreinan árlegan arð,
og þó verður arðurinn meiri að miklum mun, þegar
taðan er metin til þess verðs, sem fæst upp úr henni,
þegar vel mjólkandi kýr er fóðruð á henni og arður-
inn af kúnni reiknaður til peningaverðs móts við önn-
ur matvæli, eins og rétt er í búnaðarlegu tilliti. — það
yrði of langt mál, sem ætti ekki vel við efni ritgjörð-
ar þessarar, færi eg að sýna fram á þetta með langri
röksemdaleiðslu. Eg vil að eins geta þess í stuttu
máli, að meðalkú snemmbærri, sem hefir 25 punda
gjöf á dag af góðri töðu, ætla eg að mjólka að með-
altali um innigjafartímann 5 pottaádag. Ef nú af 25
pundum töðu framleiðast að meðaltali 5 pottar ný-
mjólkur, þá framleiðast af einum töðuhesti eða af 160
pnndum töðu að meðaltali 32 pottar, og af 30 hestum
960 pottar. fessir 960 nýmjólkurpottar eru 2400 pd.