Tímarit Hins íslenzka bókmentafélags - 01.01.1880, Page 59
59
maður, en fullkomlega vandaður og réttlátur; dæmdi
hann Fuhrmann sýknan og grunlausan um að hafa
gefið, látið gefa, eða vitað til, að Appollóníu hefði
nokkuð banvænt verið gefið fyrir andlátið, og var sá
dómur staðfestur af hæstarétti. Sá partur málsins,
sem þar féll á Fuhrmann, sem sé viðureign hans og
Katrínar Holm við Pál Kinch, kom aldrei undir dóms-
ákvæði dómsnefndarinnar hér á landi.
Jóni biskupi eru margar góðar réttarbætur presta-
stéttinni í hag að þakka, svo sem sér í lagi:
1., að af beztu brauðum skyldi gjaldast árstillag til
uppgjafapresta, ekki í landaurum, heldur í pen-
ingum (i735)-
2., að þeir skyldu vera opinberum skriptum undan-
þegnir, sem þegar giptust eptir framið lausaleiks-
brot (1735).
3., að próföstum skyldi heimilt með tveim prestum
að halda prestastefnur innan héraðs í andlegum
málum (1736).
4., að próföstum sé leyft að yfirheyra votta, hverrar
stéttar sem séu, í málum þeim, er snerta em-
bættishegðun presta (1737).
5., að amtmenn láti innkalla sektir til spítalanna
(1740).
6., fyrirmynd fyrir kirkjureikningum (1740).
7., að prófastar í prestamálum afsegi fullnaðardóm í
héraði (1741).
8., að ekkert prestakall megi veita, fyr en það hefir
staðið uppi í 6 vikur (1742).
9., um dagsverk búanda þeirra, sem ekki eru í skipti-
tiund (1726).
10., að prófastar úr Rangár-, Árness-, Kjalarness-,
Borgarfjarðar- og Mýra-prófastsdæmum séu skyldir
að sækja Synodus á ári hverju ásamt tiltekinni tölu
presta (1732).