Tímarit Hins íslenzka bókmentafélags - 01.01.1880, Page 60
6o
ii., að hinir forboðnu giptingarliðir séu á io. sunnu-
dag eptir Trinitatis á ári hverju upplesnir af pré-
dikunarstólnum.
Hver árangur orðið hafi af starfi hans, ásamt
Steini biskupi og lögmönnunum Benedikt forsteinssyni
og Níels Kjær, að nýju kirkjulagaverki, er ókunnugt,
en víst er það, að þessum 4 mönnum var boðið 1728
að koma saman í Kalmannstungu til að ljúka þessu starfi,
og hefir Espolín (Árb. 8. hl., bls. 94) fyrir satt, að þeir
hafi gjört það. Líkast til hefir farið um þetta lagastarf
eins og þau verzlegu, sem einn lögmaður eptir annan
var látinn fjalla um, en sem aldrei hefir orðið neitt úr.
Gegn kaupmannafélaginu beið hann ósigur, er hann
fór þess á leit við stjórnina, að kaupmönnnm yrði
bannað að flytja brennivín hingað til lands. Má af
þessu sjá, að bindindishugsunin er eldri hér á landi,
en margur hyggur.
þ>ótt Jón biskup hafi aldrei verið kallaður nema
meðalmaður að gáfum, þá ávann hann það alt að einu
með iðjusemi sinni og ástundun, að hann er talinn
með vorum lærðari biskupum, sér í lagi í kristinna
laga rétti, málfræði, mælingarlist og stjörnufræði. Mat
hann hyggindi, sem þau í hag koma, og liggur því
bæði eptir sjálfan hann beinlínis, og fyrir hans tilstilli,
eptir aðra margt nytsartit og uppbyggilegt, sem að
bókmentum lýtur, þó annað betra kunni síðar að vera
komið i þess stað, svo sem :
A. Eptir sjálfan hann:
a. prentað:
1. Barnalærdómur út af I.úthers fræðum, Kaupmanna-
höfn, 1722.
2. J esrím (ævarandi almanak) eptir nýja stýl, Hólum,
1707.
3. íslenzkt fingrarím, Kaupmannahöfn, 1712.
4. Nucleus latinitatis, Kaupmannahöfn, 1728.