Tímarit Hins íslenzka bókmentafélags - 01.01.1880, Page 64
64
S m á v e g i s.
Bréf frá Birni yfirkcnnara, Gunnlaugssyni til Arna biskups
Helgasonar, dagsett Rvík, 23.febr. 1855.
Ekki ætla eg að bera það við, að skrifa þér, gamli góð-
kunningi minn, eins lipurt og elskuríkt bréf sem það, er eg
hefi nú fengið frá þér. Eg er alt of stirður til þess, en eg
þakka þér hjartanlega fyrir það í mestu einfeldni. Altaf hefir
mér fundizt mikið til koma þess, sem eg hefi séð og heyrt til
þín, síðan fyrsta sinn eg kom til þín að Reynivöllum, og ekki
held eg minnki vinskapur okkar fyrir það, þó við báðir séum
ástfangnir af sömu stúlkunni, þvi mér þykir vænt um að geta
haft samslags tilfinningar sem þvi; eg held ekki geti hjá því
farið, aðþær séu samhljóða hjá okkur, þar eg svo mikiðgleðst
af öllu, sem eg hefi heyrt og séð frá þinni hendi. Skyldu
menn þá aldrei verða svo heppnir, að sjá nýjan árgang af pré-
dikunum þínum auk þess, sem fenginn er? — En svo eg komi
aptur til stúlkunnar okkar, þá þykir mér mikið gaman að gá-
góns-hætti drengsins og að alvörugefni og Hklegu þolgæði kon-
unnar, sem kennir honum, þar konur þurfa mjög á þessu að
halda1.
Alt er hér nýmælalaust, sem þú hefir ekki heyrt, nema
að Satúrnus er skamt eitt austur af Sjöstirninu, milli þess og
Fjósakonanna, nærri rétt upp undan Aldebaran eða Uxans-
auga. Hann er rétt eins og kaffekanna með handarhöldum
að sjá, vegnaþess hringinn bersvovið. þessi himneska kaffe-
kanna hallast til austurs, rétt eins og sé verið að skenkja á
fyrir Fjósakonumar, og mun vera langt síðan þær hafa fengið
kaffe, veslingar.
Kona mín og eg óskum, að þér og þínum megi vel vegna
æfinlega.
LEIÐRÉTTING. Á 8. bls. 14. 1. a. o. stendur: „þvi engar leiðrétt-
ingar hefir þótt þurfa að prenta“ . .. i staðinn fyrir: „því engar slík-
ar leiðréttingar“ o. s. fr. í útgáfunni er „Norfi“ leiðrétt, en ekkert
af hinu, og mýmargar villur eru ekki leiðréttar.
') Hér er átt við myndina framan við stafrofskver H. Kr. Friðriksson-
ar og M. Grimssonar. Khöfn, 1854.