Tímarit Hins íslenzka bókmentafélags - 01.01.1881, Page 12

Tímarit Hins íslenzka bókmentafélags - 01.01.1881, Page 12
12 og var sjálfur fjórði maður frá honum. pessi ætt hefir eflaust nefnt sig Æverlingaœtt. Æverlingar er mynd- að á sama hátt af Ævarr og Kjalleklingar af Kjallakr, Freysgyðlingar af Freysgoði, Valþýflingar af Valpjófr, o. s. frv.1 Um það leyti sem Sturlunguhandrit þau, sem vér nú höfum, vóru rituð, vóru menn farnir að rugla saman rl og ll í framburði, og var þá eðlilegt, að ritararnir héldu, að síðari hluti orðsins Æverlingar, sem þeir höfðu fyrir sér í frumhandritunum, væri mynd- aður af völlur eða vellir, og urðu þeir þá að skilja orð- ið svo, sem það væri leitt af einhverju örnefni; en þá gátu þeir eigi skilið fyrsta staf orðsins og breyttu þeir honum því, eptir því sem hvorum um sig þótti líkleg- ast, einn í d en annar 1 ey, til þess að staðarmerking- in gæti komið fram i orðinu í heild sinni. Hafi Æver- lingagoðorð staðið í frumhandritinu, þá er ljóst, hversu báðar hinar röngu myndir hafi komið upp, þar sem myndin KÆverlingagoðorð“ liggur mitt á milli peirra beggja. Menn þurfa þá heldur eigi framar að leita að örnefni, sem hvergi finst, til þess að leiða af nafn goðorðsins. Menn kunna að koma með þá mótbáru, að ætt Hafliða sé á öðrum stað í Sturlungu nefnd Húnröðlingar, en eigi Æverlingar, og svo nefnir Guðbrandur Vigfússon þessa ætt í ættartölum þeim, er fylgja Sturlungu hans.2 En fyrst er það eigi óhugsandi, að ættin hefði verið 1) Kjalleklingar eru nefndir í Eyrb. Leipz. 1864, 8.bls. og víðar; Freysgyðlingar í Landn. IV. p. 13. k. (Isl. s. Kh. 1843 I. b. 275. bls.), sbr. V. p. 15. k. (I. b. 321. bls.). Val- þýflinyar stendur í Hauksbók Landn. I. p. 13. k. (ísl. s. I. b. 46. bls.), en þar hafa önnur handrit: Valþjóflingar hljóð- varpslaust. 2) Sturl. 1878. VII. 38. k. (I. b. 229. bls.). Jón Sigurðs- son segir og hiklaust, að Húnröðlingar hafi verið ættmenn Hafliða Mássonar (Diplomatarium Islandicum I. b. 579. bls.), en rekur þó eigi ætt þeirra.

x

Tímarit Hins íslenzka bókmentafélags

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit Hins íslenzka bókmentafélags
https://timarit.is/publication/228

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.