Tímarit Hins íslenzka bókmentafélags - 01.01.1881, Síða 14

Tímarit Hins íslenzka bókmentafélags - 01.01.1881, Síða 14
14 J>órðar ber saman við föðurnafn ívars; sonur |>órðar hét og Bergþór, og kemur það nafn líka fyrir í ætt- inni, því að svo hét bróðir Hafliða Mássonar. En hafi f>órðr ívarsson verið Æverlingur, þá er óliklegt, að Jón Húnröðarson hafi verið náskyldur honum, þar sem þeir deildu illdeilum og J>órðr gjörði Jón sekan. Ver- ið getur, að Húnröðlingar sé einhver kvisl af Æver- lingaættinni, en eigi hygg eg, að helzti ættbálkurinn, sem Hafliði var af og kominn var af Ævari gamla í beinan karllegg, hafi nefnt sig eptir nokkrum öðrum en Ævari. Að frændsemi hafi verið með þeim niðjum Jóns Húnröðarsonar og ættmönnum Hafliða Mássonar, virðist mega ráða af því, að þar sem Húnröðlingar eru nefndir, er þess getið, að Illugi Bergþórsson hafi búið að 'þorkelshóli, og eru allar líkur til, að hann hafi verið sonur Bergþórs þess, er týndist á Stangarfola, og eflaust hefir verið sonur J>órðar ívarssonar; Illugi þessi er reyndar eigi beinlínis nefndur Húnröðlingur, en þó má sjá, að hann hefir verið skyldur ættboga þeim, sem taldi kyn sitt til Húnröðar föður Jóns Hún- röðarsonar.1 Á sama stað er líka nefndur J>orsteinn Hjálmsson á Breiðabólstað, og er hann eigi heldur beinlínis talinn Húnröðlingur, heldur „frændi þeirra“. |>essi þ>orsteinn hefir eflaust á einhvern hátt verið kominn frá Hafliða Mássyni; mun hann hafa verið sonur Hjálms Ásbjarnarsonar „frá Vesturhópi“, sem getið er víðar en einu sinni í Biskupasögum og Sturl- 1) Nafnið Illugi kemur optar fyrir í Æverlingaætt; svo hét dóttursonur Hafliða, sem drukknaði, er hann flutti stein- lím til kirkju, sem hann ætlaði að gjöra að Breiðabólstað (Kristni s. 14. k., Bisk. s. I. b., 32. bls.). Annars sést það á eldri útgáfu Sturlungu, að sum pappírshandrit kalla Illuga þenna »bróðurson þeirra« (o: Ófeigssona, Jóns og Eyjólfs), en «bróðurson«, er víst að eins mislesið fyrir «Bergþórsson«, og »þeirra« síðan við bætt af ritaranum. St. Khöfn 1817, II. 38 (IV. 20.).

x

Tímarit Hins íslenzka bókmentafélags

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit Hins íslenzka bókmentafélags
https://timarit.is/publication/228

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.