Tímarit Hins íslenzka bókmentafélags - 01.01.1881, Blaðsíða 19
19
hafi verið tekið upp um sama leyti og fimtardómur
var í lög leiddur. Eins og ljóslega sést af Njálu, og
að' nokkru leyti líka af Bandamannasögu, reyndu þeir
höfðingjar, sem forn goðorð áttu, að sporna við því
af öllu megni, að ný goðorð væri tekin upp í grend
við þá, sem ogvar von, þvíað stofnun hinnanýju goð-
orða miðaði beinlínis til þess að takmarka vald hinna
fornu goðorða, eins ogMaurer hefir sýnt. Með þessu
móti gat það sumstaðar dregizt langa hríð, að hin nýju
goðorð væri tekin upp og nýmælunum fullnægt, ef
unum 1267—1271. Réttarbót þessi er innfærð í Járnsíðu
(Khöfn 1847. Mannh. 29. k., 47.—48. bls., sbr. »Norges gl.
love« I. b. 273.—274. bls.), og getur hún því eigi verið yngri
en 1271, því að þá var lögbók þessi flutt hingað til lands.
Bn hins vegar getur hún eigi verið eldri en 1267, því að rétt-
arbótin getur um Jón erkibiskup, og hlýtur það að vera Jón
rauðr, sem varkjörinn til þeirrar tignar í október 1267. Síð-
an hefir réttarbót þessi verið tekin upp í landslög hin nýjari
(»Norges gl. love« II. b. 58. bls.). Nú er eigi óhugsandi, að
sá sem ritaði eða lét rita Staðarhólsbók, hafi þekt réttarbót
þessa, og talið víst, að baugatal mundi og verða numið úr
lögum hér á landi, eins og líka var gjört í Járnsíðu (sjá stað-
inn, sem til var færður hér að framan), og að hann hafi slept
baugatali af þessari ástæðu. Af þessu leiðir eigi, að alt hand-
ritið sé ritað eptir 1267. það er jafnvel líklegt, að Vígslóði
hafi verið ritaður, áður en ritari bókarinnar taldi víst, að
baugatal mundi verða numið úr gildi, þar sem þessi þáttur
bæði vísar til baugatals og hefir ýmsar lagaákvarðanir sam-
hljóða því. En það er athugavert, að í Staðarhólsbók stend-
ur vfgslóði miklu aptar en í konungsbók; í konungsbók er
hann þriðji þáttur að framan, en í Sthb. næstur hinum síð-
asta þætti, sem er landabrigðaþáttur. I konungsbók stendur
baugatal næst á eptir vígslóða í eðlilegri röð, og þar hefði það
líka átt að standa í Sthb. það getur þvl vel staðizt fyrir
þessu, og er enda líklegt, að alt handritið, aptur fyrir víg-
slóða, hafi verið skrifað áður en baugatal var numið úr lög-
um í Noregi, en sé baugatali slept af þeirri ástæðu, sem nú
var til greind, þá leiðir af því, að landabrigðaþáttur að minsta
kosti sé ritaður eptir að ritaranum varð kunn réttarbótin, eða
eptir 1267. Hins vegar mun það víst, að Sthb. sé rituð áður
2’