Tímarit Hins íslenzka bókmentafélags - 01.01.1881, Page 20
20
„fornu“ goðarnir vóru nógu ríkir og einbeittir, til að
sporna við þvf, að nokkur „nýr“ höfðingi gæti risið
upp nálægt þeim, er hefði nægilegan skörungsskap
og þokkasæld til þess að laða að sér þingmenn, og
er eigi ólíklegt, að svo hafi og hér verið, og að báðar
sögurnar geti haft rétt fyrir sér með þessu móti. Vér
teljum því víst, að Melmanna goðorð hafi verið eitt af
hinum nýju goðorðum, og líklegt, að Oddr Ofeigsson
hafi fyrstur tekið það upp, og að höfðingjar þeir, sem
bjuggu á Mel um noo og á 12. öld, hafi verið frá
Oddi komnir. Af þessum höfðingjum á Mel þekkjum
vér enn fremur Kálf Snorrason, þess er fyr var getið.
Hann dó ngS.1 Bróðir Kálfs, Halldór, var veginn á
alþingi gijótflaugarsumar 1163,2 og um 1170 er þess
getið, að Vilmundr Snorrason hafi fylgt Einari þor-
gilssyni móðurbróður sínum; var hann einn af þeim,
sem urðu sekir skógarmenn um víg Karls Konráðs-
en Jáms. kom hingað til lands (1271), því alt þangað til hafa
menn haldið, að hin fornu lög mundu verða látin halda sér
óbreytt að svo miklu leyti, sem þau eigi snertu stjórnarskip-
unina, og hefði það eigi verið, mundi mönnum hafa þótt ó-
þarfi, að safna þeim í jafnvandaða bók og Staðarhólsbók er.
það er og skoðun Maurers, að Sthb. sé rituð á árunmn 1262—
1271, en Vilhjálmur Finsen ætlar hana ritaða fyrir 1262.
Munch hélt, að hún væri rituð eptir skipun Noregskonungs
um 1271, til þess að hafa hliðsjón af við samansetningu
hinna nýju laga, og til leiðbeiningar fyrir Sturlu lögmann
þórðarson, og aðhyllist Guðbr. Vigfússon þá skoðun. Sbr.
Maurer: »Ueber das alter einiger islánd. rechtsbúcher» í
Germania 1870. 1.—17. bls. (þá ritgjörð hefi eg því miður, eigi
haft); Udsigt over de nordgerm. retskilders historie, 81. bls.;
Vilhj. Finsen í »Aarb. f. nord. 01dk.« 1873. 239—240. bls.;
Staðarhólsbók, Khöfn 1879, formála XIII. bls.; Munch d.
norske folks historie. IV. 1. 627. bls.; Guðbr. Vigfússon í
Prolegomenis Sturlungu sinnar cc. bls.
1) Islenzkir annálar við árið 1198, sbr. Bisk. s. I. 147.—
148. bls.
2) Bisk. s. I, 412. bls. St. 1878. IV. 2. k. (I. b. 90.
bls.). Islenzkir annálar við árið 1163.