Tímarit Hins íslenzka bókmentafélags - 01.01.1881, Page 21

Tímarit Hins íslenzka bókmentafélags - 01.01.1881, Page 21
21 sonar og Böðvars Grímssonar og Skógungar vóru kallaðir, og var einn þeirra Skógunga mágur hans, Már Guðmundarson, er átti Helgu Snorradóttur, syst- ur þeirra bræðra1. Kálfr hefir eflaust verið fyrir þeim bræðrum og veitir hann móðurfrændum sínum að eptir- málum eptir Einar f>orgilsson2. Kálfr átti marga sonu, og eru þeir í Sturlungu ýmist nefndir Melmenn eða Kálfssynir3. Af þeim hefir f>orgils víst verið helztur, því að hann bjó á Mel um 12164. Auk þess er nefndur Vigfús Kálfsson, sem var fylgdarmaður Klængs Bjarnarsonar, og var veginn i för með Birni Sæmundarsyni frænda sínum árið 12335 6 * * *, og enn fremur Bjarni Kálfsson um 1184 og síðar um 121613. Son Bjarna var Tannr, sá er riðinn var við skærur þeirra Miðfirðinga og Víðdola, níðskár maður og kallaður enginn sættir manna. Á dögum Kálfssona gengur staðfesta þeirra og ef til vill líka goðorð undan þeim, sem áður er sagt, og er víst, að Snorri Sturluson átti Melsland um 1232, en nokkr- ar líkur eru til þess, að Sturla Sighvatsson hafi haft eitthvert mannaforráð í Miðfirði og vesturhluta Húna- vatnsþings jafnhliða Snorra, og getur það eigi verið frá öðrum komið í hans eign en frá Melmönnum. þ>ann- ig er þess getið, að tveir rnenn úr Víðidal hafi fylgt Sturlu í Grímseyjarför, og að hann hafi riðið norður til 1) St. 1878. III. 16. og 18. k. (I. b. 58. og 60. bls.), sbr. Bisk. s. I. b. 418. bls. St. 1878. V. 2. k. (I. b. 129. bls.). 2) St. 1878. VII. 3. k, (I. b. 196. bls.). 3) »Melmenn«. St. 1878. VII. 23. k. (I. b. 213. bls.). «Kálfssynir»: VII. 40. k. (I. b. 237. bls.). 4) St. 1878. VII. 38. k. (I. b. 229. bls.). 5) S. st. VII. 95. k. (I. b. 317. bls.), sbr. VII. 90. k. (I. b. 313. bls.). 6) S. st. VII. 38. k. (I. b. 230. bls.), og IV. 9. k. (I. b. 101. bls.). »Björn« KAlfsson, sem nefndur er St. III. 18. (I. b. 59. bls.) með Einari þorgilssyni, er ef til vill sami mað- urinn, því handritið B (Á.M. 122. a) nefnir hann Bjarna.

x

Tímarit Hins íslenzka bókmentafélags

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit Hins íslenzka bókmentafélags
https://timarit.is/publication/228

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.