Tímarit Hins íslenzka bókmentafélags - 01.01.1881, Page 35
3$
verður að bora í gegnum, áður en hann kemst niður
að kolunum. Hið sama sjáum vér á hverjum degi
eiga sér stað í mómynduninni. í mómýrunum er mik-
ið af dauðum jurtum, og er slíkur jarðvegur mjög vel
lagaður til að efla vöxt ýmissa mosategunda og mýra-
jurta, og hjálpar einnig vætan í mýrunum til að auka
frjóvsemi þessara jurta, og undir eins og ein jurtin
fölnar og deyr, kemur önnur í hennar stað, sem nýt-
ur næringar af leifum hinnar dauðu. Fyrst rotna og
eyðast hinar dauðu jurtir, eins og alt, sem til jurtarík-
isins heyrir, þegar það deyr og verður fyrir áhrifum
loptsins; en þessi rotnun og eyðing fer smámsaman
minnkandi, eptir því sem áhrif loptsins á hinar dauðu
jurtir hindrast af því, að mosajurtirnar, sem ávalt
spretta upp nýjar og nýjar á hinum dauðu sem undir-
lagi, mynda ofan á þær hvert nýtt lag á fætur öðru.
þ»egar hinar dauðu jurtir þannig eru með öllu útilok-
aðar frá áhrifum loptsins, verða þær fyrir sérstakri
breytingu, er vér síðar munum drepa á, og verða þær
þá að mó. þ»essi breyting verður smátt og smátt, og
fer sér mjög hægt, svo hundruðum ára skiptir; en
allan þenna langa tíma, meðan þessi breyting er að
eiga sér stað, eru alt af ný og ný lög að myndast
þar ofan á af þeim mosajurtum, sem sífelt eru að
spretta upp og deyja; eru því ávalt að safnast meiri
og meiri þyngsli ofan á móinn, sem þjappa honum
saman, svo að hann verður að föstum, hörðum og dökk-
leitum líkama, og því eldri og dýpra í jörðu niður sem
mórinn er, því líkari er hann kolum. það er enginn
efi á því, að kolin hafi myndazt á sama hátt og mór-
inn, en sökum þess að þau eru svo margfalt eldri en
hann, og þar eð þau hafa orðið fyrir svo mörgum
sinnum meiri þrýstingi vegna grjóts þess og kletta,
sem ofan á þau hafa safnazt, hafa þau orðið fyrir meiri
breytingu, bæði að efni og útliti, og þess vegna er
3*