Tímarit Hins íslenzka bókmentafélags - 01.01.1881, Page 38

Tímarit Hins íslenzka bókmentafélags - 01.01.1881, Page 38
3» í þessari mynd er betri til eldsneytis, en hinn yngri mór, þar eð hinn eldri mór er hitameiri. Mógrafir eru mjög misjafnar að dýpt, frá 6 fetum alt að 30 til 40 feta. Mórinn er vanalega tekinn upp úr gröfunum með skóflum og pálum, og hann er síðan þurkaður, en sumstaðar er mórinn svo linur og vatnsborinn, að hann verður ekki stunginn; er hann þá tekinn upp með stórum sleifum eða trogum, eða þá í pokum, sem þandir eru út á járnhring, er honum sfðan dreift út á jörðina, og þurkaður þannig. jþegar vatnið síðan er úr honum að miklu leyti, bæði þannig, að það hefir gufað upp, og sumpart runnið úr honum niður í jörð- ina, þá er hann mótaður f formum, og síðan þurkaður sem annar mór. En hvernig svo sem mórinn er til búinn, þá inniheldur hann, þegar hann er að eins þurk- aður fyrir áhrif loptsins, 15—30 ”/» af vatni, og það er þetta, sem dregur svo úr gildi hans til eldsneytis. feg- ar mórinn er vel þéttur og vel þurkaður, þá hefir hann sama hitaafl og viður, og hálft hitaafl móti kolum, en laus mór hefir að eins 7s hitaafls móti kolum. 2. Lignit eSa brúnkol. J>essi kolategund er ýmist mórauð eða svört að lit, og hefir hún stundum feitargljáa. Hún er eins hörð, þétt og þung, eins og steinkol, og venjulega sést trémyndunin í henni, og dregur hún af því nafn sitt, lignit (á latínu lignum). Brúnkolin finnast í þrílagamynduninni (Tertiary Forma- tion), og eru þess vegna, í jarðfræðislegu tilliti, miklu yngri en steinkolin. þ>au loga vel, en hita ekki nærri því að sama skapi og steinkolin. þ>egar nýbúið erað grafa brúnkolin upp úr jörðunni, innihalda þau opt 30—40 i° af vatni, og þótt þau séu þurkuð lengi undir berum himni, tekst varla að ná nema helmingnum af vatninu úr þeim. Hinar harðari og dekkri tegundir af brúnkolum má fága, og eru úr þeim tilbúnir ýmsir smíðisgripir. Surtarbrandur er ein tegund af lignit.

x

Tímarit Hins íslenzka bókmentafélags

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit Hins íslenzka bókmentafélags
https://timarit.is/publication/228

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.