Tímarit Hins íslenzka bókmentafélags - 01.01.1881, Qupperneq 41
41
Eptirfylgjandi tafla sýnir, hveru mikið af öllum
þessum áðurnefndu kolategundum þau lönd, sem gefa
af sér kol, hafi af sér gefið árið 1872:
England.............................131,640,000 tons1
Bandaríkin í Norður-Ameríku . . . 42,800,000 „
f>ýzkaland.....................42,418,000 „
.............................15,658,950 „
Frakkland......................15,204,170 „
Austurríki og Ungverjaland . . . 4,764,790 „
Ástralia og Nýja-Sjáland....... 1,347,000 „
Nýja-Skotland, hin brezka Columbia,
og Kili................. 810,000 „
Indland......................... 650,000 „
Japan, Kina og Birma............. 44,000 „
255.336,910 tons.
Af þessu sést, að árið 1872 hafa kolanámar heims-
ins gefið af sér rúmlega tvö hunduð fimmtíu og fimm
millionir tons af kolum, og var rúmlega helmingurinn
afþví fráEnglandi. í engu landi er heldur brúkað eins
mikið af kolum eins og í Englandi, næst þ ví brúka Banda-
ríkin í Norður-Ameríku mest, þar næst f>ýzkaland, og þar
næst Frakkland. f>etta hið nefnda ár voru það að eins
þrjú lönd í heimi, sem gáfu af sér meiri kol, en brúkað
var í þeim sjálfum, nefnilega England, Belgia og f>ýzka-
land; þessi þrjú lönd fluttu einnig mikið af kolum til
annara landa.
Einnig hér á íslandi finnast kol, þótt hingað
til hafi verið lítið gjört til þess að rannsaka kola-
byrgðirnar, eður til að reyna að hagnýta sér þau.
Á ýmsum stöðum i landinu finnst surtarbrandur, sem,
eins og fyr er sagt, er tegund af lignit; surtarbrand-
urinn er sumstaðar hafður til eldsneytis; þó er mjög
lítið um þá notkun hans. Steinkol hafa líka fundizt
1) 1 ton = 6^ skippund,