Tímarit Hins íslenzka bókmentafélags - 01.01.1881, Síða 44

Tímarit Hins íslenzka bókmentafélags - 01.01.1881, Síða 44
44 fer óbrunnið út 1 loptið sameinað sem kolavatnsefni (Hydrocarbons), og þessvegna fer í vanalegum ofnum og eldavélum talsvert til ónýtis af kolum, þar sem nokkur hluti þeirra hverfur óbrunninn sem reykur og gas, og það, sem þannig fer, gefur engan hita. En það að reykurinn þannig nær að hverfa frá kolunum, hefur ekki að eins það í för með sér, að eldsneytið ódrýg- ist, heldur gjörir reykurinn einnig það að verkum, einkum í stórum borgum, að loptið verður þungt og óheilnæmt; orsökin til þessa er bæði hinar litlu kola- agnir, sem reykurinn myndast af, og svo einnig hin brennisteinskenda gufa, sem er í reyknum, og sem myndast af brennisteini þeim, sem eins og áður getið, ætíð er í kolunum. Hin þykka gula þoka, sem opt er í stórborgum, þar sem miklu er brent af kolum, eink- um í I.ondon, og sem er mjög skaðvænleg fyrir líf og heilsu manna, halda menn að orsakist af ofmiklum kolareyk í loptinu, sem blandist saman við vatnsgufu þá, er myndar hina venjulegu þoku; kolareykurinn gjörir þá þokuna þykkari, dekkri og óheilnæmari, og tálmar því, að sólargeislarnir geti dreift henni. Margar tilraunir hafa því verið gjörðar til þess að búa til ofna og eldavélar, þannig lagaðar, að þær brendu kolunum alveg upp, og hleyptu litlum eða engum reyk út, en þetta hefur enn þá ekki tekizt fullkomlega, þótt margar endurbætur í þessu tilliti hafi verið gjörðar á hitunarvélum þessum. Mestur kemur reykurinn, þeg- ar nýbúið er að láta kol á eldinn, þar eð áður en hin köldu kol verða nógu heit til þess, að efni þeirra nái að sameinast súrefni loptsins, fer mikið af reyk og kolavatnsefni úr þeim óbrunnið. þ>etta má að nokkru leyti forðast með þvf, að bæta opt kolum á eldinn, og litlu í einu, í stað þess að bæta miklu á í einu og sjald- an. Ofnar hafa og verið búnir til á þann hátt, að i þeim miðjum er pípumyndað op, sem er opið niður

x

Tímarit Hins íslenzka bókmentafélags

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit Hins íslenzka bókmentafélags
https://timarit.is/publication/228

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.