Tímarit Hins íslenzka bókmentafélags - 01.01.1881, Side 46

Tímarit Hins íslenzka bókmentafélags - 01.01.1881, Side 46
46 hafa einnig verið til búnir; þeir eru tvöfaldir; i hinu innra hylkinu er eldurinn, en upp um bilið, sem er á milli hins innra og hins ytra hylkis leggur loptstraum, sem er kaldur þegar hann fyrst leggur inn í ofninn að neðanverðu, en hitnar á leiðinni uppeptir, og fer síðan út um göt, sem eru efst á ofninum; leggur hann þá út um alt herbergið og hitar það. J>essir ofnar eru án efa betri en hinir einföldu ofnar, en þó eru þeir ekki nærri eins heilnæmir, eins og opnu ristarofnarnir. Áður en vér hættum að tala um brennslu kolanna, viljum vér drepa á, hvað verður af því efni, sem kem- ur fram við bruna þennan, nefnilega kolsýrunni og vatninu, einkum af því, að vér sjáum þar ljóst dæmi upp á það, hversu hlutirnir í alheiminum aldrei verða að engu, og upp á hina sífeldu breytingu og hring- ferð efnanna. f>egar kolin eru út brunnin, þá hverfa þau sjónum vorum, og sýnast vera orðin að engu, en, eins og vér þegar höfum séð, þá eru þau að eins orð- in umbreytt, og eru orðin að kolsýru og vatni, sem hvorttveggja hverfur upp í loptið sem ósýnilegt lopt- efni. Kolsýra og vatn eru samsett af frumefnunum: kolefni, vatnsefni og súrefni, og eins og áður er sagt, er viður og alt sem til jurtaríkisins heyrir, myndað af þessum þremur frumefnum. J>ær rannsóknir, sem gjörð- ar hafa verið viðvíkjandi vexti jurtanna, sýna, að kol- efnið, vatnsefnið og súrefnið, sem þær myndast af, fá þær frá kolsýrunni og vatnsgufunni, sem er 1 loptinu, og sem þær sjúga að sér gegnum blöðin. Af þessu leiðir, að þegar viði, mó eða kolum, sem öll hafa hina sömu efnafræðislegu samsetningu og hinn sama upp- runa frá jurtaríkinu, er brent, þá breytast þau í kol- sýru og vatn, sem fer upp í loptið, síðan draga jurtirnar þessi tvö efni til sín, og breyta þeim aptur í við, sem þá, ef til vill, seinna verður aptur að mó eða kolum. þannig verður hinn sami hlutur fyrir hverri

x

Tímarit Hins íslenzka bókmentafélags

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit Hins íslenzka bókmentafélags
https://timarit.is/publication/228

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.