Eimreiðin


Eimreiðin - 01.05.1898, Page 40

Eimreiðin - 01.05.1898, Page 40
120 báráttu um óákveðinn tima, sem hlyti að verða til óbætanlegs hnekkis og niðurdreps fyrir bæði andlegar og verklegar framfarir í landinu. Þegar um þetta tvennt hefði verið að velja, þá er auð- sætt hvorn kostinn E. A. hefði tekið. Þetta verður og enn ljós- ara, þegar menn líta á niðurlagsorðin í ritgerð hans. Þar segi'r svo (bls. 19): »Margar af þeim lagabótum, sem nú var bent til, er að vorri hyggju enn þá nauðsynlegra að fá fljótlega, heldur en breytingar á stjórnarskránni. Vjer höfum mikið að gera og margt að laga í þjóðfjelagi voru, og þurfum til þess eigi svo lítinn tíma. Hið nauðsynlegasta verður því einkum að vera i fyrirrúmi, en það er reyndar, að ætlun vorri, að gera sarngöngurnar sem greiðastar, bæta aivinnuvegina, búnaðinn, sjávarútveginn, verzlunina o. s. frv., en sjer í lagi og umfram allt að auka og efla menniun alþýðunnar, sem er hinn eiginlegi grundvöllur undir framförum og velgengni þjóðfjelagsins.« Margur Þingeyingur og Eyfirðingur hefði sjálfsagt gott af að athuga þessi orð hins framliðna öndvegishölds Norðurlands, því þótt stjórnspekingum skjóti nú upp hjá þeirn sem gorkúlum, þá er opt valt að treysta á nýgræðinginn. Það hefur líka heldur en ekki sýnt sig, að sumir þessara stjórnspekinga, sem með ham- ramlegum tilberalátum vaða á bæxlunum í blöðunum, eru ekki á marga fiska, þar sem þeir (eins og t. d. G. F. í »Dagskrá«) hafa ekki einu sinni aflað sjer svo mikillar þekkingar á stjórnarskránni, — hvað þá heldur á málinu yfirleitt —, að þeir viti, að aðra og flóknari aðferð þarf að hafa til að breyta henni en einföldum lögum, sem maður þó skyldi halda að hver óbrotinn smalastrákur á Islandi vissi nú orðið, jafnlengi og búið er að þvæla stjórnar- skrármálið þar. — Skoðanir Einars sál. Asmundssonar vóru byggð- ar á dálítið traustara grundvelli en gaspur slíkra fáfræðinga. V. G. Danzigar-súkkulaðið. (Frönsk smásaga frá dögum Napóleons mikla). Um lok maímánaðar 1808, fám dögum eptir að Danzig hatði verið tekin herskildi, fjekk Lefebvre marskálkur einhverju sinni snemma morguns orðsending um, að keisarinn vildi hafa tal af honum samstundis.

x

Eimreiðin

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Eimreiðin
https://timarit.is/publication/229

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.