Eimreiðin


Eimreiðin - 01.05.1898, Blaðsíða 50

Eimreiðin - 01.05.1898, Blaðsíða 50
130 svo upp á fátæka bændur; skyldi dómur þessi standa þangað til kon- ungur skipaði öðruvisi fyrir. (Alþb. 1679, nr. 23). Svo lítur út, sem alþingissamþykt þessi hafi ekki hrifið, því í brjefi Kristjáns konungs V., 4. maí 1684, er bannað meðal annars, að pranga með tóbak; er gert ráð fyrir, að prangararnir kaupi það af kaupmönn- um á sumrin og selji það svo aptur fyrir okurverð, einkum við sjávar- síðuna. (Lagasafn Magnúsar Ketilssonar). I samþykt um verðlag á út- lendri vöru upp til sveita á Islandi, á Bessastöðum 2. apríl 1685, er aptur drepið á tóbaksokur: »Tóbak, sem taxtinn (1684) um getur, sje á engan hátt leyfilegt meðal landsmanna, til ábata að seljist, eður út aukist, sem í sannleika bevísanlegt er, að sje landsalmúga til stórs skaða og útörmunar, heldur haldist eptir þvi, sem það ár 1679, þann 4. júli af lögmönnum og lögrjettu ákvarðað var«. Oska þeir, sem undir rita, að konungur vilji samþykkja bæði samþykkt þeirra og tóbaksdóm- inn 1679, og skjóta svo málinu til næsta alþingis (Hrs. Magnúsar Stephensens 31). Par var fallizt á ákvæði þessi, og var málinu vísað »undir háyfirvaldsins confirmation« (Alþb. 1685, nr. 31). Enn gaf konungur út brjef til biskupa beggja og Pingels amt- manns um sforboð á tóbaks og brennivíns okri« 3. júni 1746. Þar er sagt, að sumir menn kaupi á sumrin mikið af tóbaki og brennivíni og selji það svo fyrir ránverð á veturna og á vorin; er þetta þver- bannað og skyldi sá sæta kirkjuaga, sem gerði sig sekan í þvi fram- vegis. Tóbak það og brennivín, sem hann kynni að hafa undir hönd- um, skyldi upptækt, skyldi konungur fá helming verðs, en hinum helm- ingnum skyldi skipta jafnt á milli þess, sem ljóstaði brotinu upp, og fátækra barna i sókninni. Sömu refsingu skyldu embættismenn þeir eða prestar sæta, sem fengjust við tóbaks eða brennivíns okur, og missa embætti sitt þar á ofan (Lovsaml. f. Isl. II, 598—99, 625; sbr. 743—44). I gjörningum þeim, sem færðir hafa verið til, er kvartað sáran yfir okursölu á tóbaki, enda mun hún hafa verið tíð mjög, en engar sögur fara af mönnum þeim, sem fengust við hana, nema Bauka-Jóni einum. Hefur hann eflaust verið merkastur þeirra manna, sem brölluðu með tóbak og aðra óþarfa vöru. 1672 komst Jón sýslumaður Vigfússon yngri í Borgarfjarðarsýslu (seinna biskup á Hólum (1674) 1684—90) í mál út úr tóbaksrullum, sem hann hafði fengið frá Hollandi, en þá var íslendingum þverbannað, að verzla við aðra en Dani. Jón sýslumaður sigldi út úr máli þessu, kom sjer í mjúkinn hjá Griffenfelt, sem þá rjeði lögum og lofum, og fjekk hjá honum veitingu fyrir Hólabiskupsdæmi þegar Gísli biskup Porláksson væri látinn. Gisli biskup dó 1684 og vildi Jón þá setjast í biskupsembættið, en honum var illa tekið og höfðu norðlenzkir prestar það á móti honum meðal annars, áð hann hefði okrað með tóbak og brennivín, eptir að hann tók biskupsvígslu. 3. júli 1685 nefndu Þórður biskup Porláksson og Christopher Heide- mann landfógeti 7 klerka á alþingi, til að rannsaka ákærur þær, sem prestar i Hólastipti höfðu látið bera fram fyrir konung á móti Jóni biskupi Vigfússyni; hafði Kristján konungur V. boðið þeim það með
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Eimreiðin

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Eimreiðin
https://timarit.is/publication/229

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.