Eimreiðin - 01.05.1898, Blaðsíða 78
i58
því næst eru í ritinu: I. Kennaratal 1847—1897 með myndum af öllum hinum
föstu kennurum skólans frá byrjun hans; II. Kandidatatal eptir stafrofsröð og
þar jafnframt skýrt ffá fæðingardegi, prófeinkunnum, hvenær þeir hafi útskrifazt
af prestaskólanum og lífsstöðu hvers eins nú; III. skýrsla urn prestaskólann
skólaárin 1895—6 og 1896—7 og IV. Flokkur eptir Valdimar Briem, sunginn
á 50 ára afmæli skólans 1. okt. 1897. Á titilblaðinu er mynd af prestaskóla-
húsinu.
ÁRSRIT GARÐYRKJUFJELAGSINS 1898. í því er urn »hnúðberandi
galtartönn« eptir fyrv. landlækni Schierbeck, »Hvers vegna vex ekki í garðinum
mínum?« eptir skólastjóra Jónas Eiríksson, »Reynir, Birki, víðir,« eptir landfógeta
Arna Thorsteinsson, »Sáðreiturinn« eptir búfræðing Aðalstein Halldórsson og
»Garðyrkjuverkfæri,« »Blómin« og »Garðstunga« eptir garðyrkjufræðing Einar
Helgason. — petta rit ætti sannarlega að komast »inn á hvert einasta heimili«,
og helzt ætti að kenna börnunum það eins og kverið. Vjer viljurn skora á
alla þá, sem hafa ekki enn fengið sjer það, að kaupa sem allra fyrst alla 4 ár-
ganga þess; þeir kosta ekki nema 75 aura (20 au. hver einstakur), en eru margra
króna virði fyrir hvern þann, sem hefur skynsemd til að læra af þeim.
HELGI HÁLFDÁNARSON: STUTT ÁGRIP AF PRJEDIKUNARFRÆÐI.
Rvík 1896. Þó bók þessi sje ekki nema 84 bls. á stærð, þá er mikið á henni
að græða. Hún er prýðilega samin bæði að efni, niðurskipun og orðfæri; en
mest þykir oss þó varið í þann mannúðaranda, sem lýsir sjer í henni. Hún
heldur því ffam, að embætti prestsins sje »ekki embætti fyrir damingar -
innar, heldur embætti fy rirgefningarinnar,* hin eiginlega köllun
hins kennimannlega embættismanns sje »að boða fyrirgefning, frið og
frelsi« (bls 11); presturinn eigi »að hræra, en ekki að hræða« (bls. 80) og
»aldrei fyrirdæma« (bls. 82). Brennisteinsprestarnir hefðu gott af að kynna
sjer þessa bók og yfir höfuð er hún hinn bezti leiðarvísir fyrir hvern prest
sem er.
■ STEFÁN B. JÓNSSON: STJARNAN. Lítið ársrit til fróðleiks og leið-
beiningar um verkleg málefni. I. ár. Winnipeg 1897. Ársrit þetta er eiginlega
íslenzkt almanak handa Vesturíslendingum, en auk þess eru í því ýmislegar rit-
gerðir og uppdráttur af Winnipegbæ. Þar er meðal annars ritgerð um frysti-
hus og íshús og leiðbeining um bygging þeirra, urn straumferjur, um metramál,
um ýmiskonar mælingar og margt fleira, sem gott er að vita. Yfir höfuð er
eigi alllítill fróðleikur í ritinu, en búningur þess er allt annað en góður. Málið
á því er mjög óvandað og víða herfilegt, og pappír og prentun í lakasta lagi.
ÍSLAND OG ÍSLENZKAR BÓKMENNTIR ERLENDIS:
FORNMENJAR OG NÚTÍÐARHEIMILI Á ÍSLANDI (»Fortidsminder og
Nutidshjem paa Island«, Khöfn 1897) heitir bók, sem höfuðsmaður í herliði Dana
Daniel Bruun hefur skrifað. Er í henni fyrst stutt lýsing á landinu og náttúru
þess og því næst frásögn urn ferð hans á íslandi 1896. Þá kernur fróðleg lýs-