Eimreiðin


Eimreiðin - 01.05.1898, Blaðsíða 49

Eimreiðin - 01.05.1898, Blaðsíða 49
I 29 jeg alvarlega þá, sem þetta eða slíkt gera, að leggja það at eður ávísi yfirvaldinu, ef þrjóskast vilja og prestanna góðum og guðrækilegum á- minningum ei hlýða, og með þvi svoddan óviðurkvæmileg höndlan er ljót og lastverð hjá veraldlegum mönnum, hvort þeir eiga meira eður minna að sjer, þá viti kennimennirnir eður andlegrar stjettar menn, að hún er enn ljótari og óviðurkvæmilegri þeirra á meðal, sem eiga að vera guðs trúir tilsjónarmenn, einskis skemmilegs ávinnings gírugir, heldur spegill og fyrirmynd guðs hjarðar. Parmeð og svo er öllum augljóst, að konglegrar majestets ordinantia befalar, að prestar skuli ei kaupmannsskap brúka af öðru en þvi, sem þeirra kall og benificia im- portera og af sjer gefa.« (Hrs Lbs. 101, bls. 114.—117.). 1678 auglýsir Jón sýslumaður Runólfsson á alþingi dóm genginn að Fáskrúðarbakka í Miklaholtshrepp 25. maí »um þá óleyfilegu og okurssömu tóbakshöndlan, sem alminnilega rómast hjer í landi tíðkuð sje.« Þingmenn frestuðu málinu til næsta alþingis. »þvi svoddan þurfi bæði með varygð og röksemd að ályktast, þar sem allt landið áhrærir«, en þangað til skyldu sýslumenn sjá svo til, að »sú óviðurkvæmilega ok- urs og ójafnaðarhöndlan á tóbaki líðist ekki umvöndunarlaust eður utan sekta af nokkrum manni«. (Alþbók 1668, nr. 40). Arið eptir eða 1679 er kveðið á á alþingi »um tóbakshöndlun hjer i landi, hvað haldast skuli.« Fyrst er talað um óhæfilega og skaðsama tóbakssölu »með ótilheyrilegri okurs aðferð, sem um mörg ár í þessu landi svo tíðkazt hefur og ætið meir og meir í vöxt fer«, og er sagt, að af henni leiði »þessa lands innbyggjara, svo búenda sem þjónustufólks, eldra og yngra, fordjarf og útörmun«; lýstu lögmenn og lögrjettumenn þvi yfir, að tóbaksverzlun væri »ei alleinasta ónauðsynleg, heldur og svo margfaldlega skaðleg«, þar sem ein alin tóbaks »af al- mennilegu rullu- eða skrúftóbaki« væri seld á 6, 8, 10, 16 og jafn- vel 20 fiska, og þar á ofan væri tóbakið stundum skemmt. I kaup- staðnum fengist tóbak ekki með betra verði en á 15, 20 eða 30 fiska pundið. Dæmdu þingmenn »fyrir svoddan landsins og þess innbyggjara stórnauðsynjar*, að eptir þetta mætti ekki selja tóbaksalin dýrara manna á milli, en fyrir fiskvirði; skyldi þó tóbak þetta vera ófúið og óskemmt og skyldu fara 10 álnir i pundið, en ef tóbakið væri betra eða verra, skyldu sýslumenn eða hreppstjórar i hverri sýslu ákveða verð á þvi. En ef dýrara væri selt, en á væri kveðið, þá skyldu bæði kaupandi og seljandi gjalda konungi fjórar merkur í sekt, og tóbakið auk þess upp- tækt; skyldi sá, er ljóstaði málinu upp, hafa þriðjung andvirðisins, en sýslumaður tvo hluti. Ef sýslumenn eða hreppstjórar ljetu þá menn hlutlausa, sem seldu tóbak dýrara, en tekið var til, þá skyldu þeir sjálfir sekir 4 mörkum, og er þeim jafnvel hótað embættismissi, »því óliðandi er, að þeir, sem kongleg majestet tiltrúað hefur að vandlæta, það mögulegt vera má, um þennan og annan skaðlegan landsins ó- sóma, til styðji eður samvitandi sje, það fátækt föðurland þvílika for- djörfun og útörmun liði.« Enn skyldu sýslumenn banna dönskum kaup- mönnum i kaupsetningum sínum á ári hverju, að selja íslendingum tó- bak dýrara en góðu hófi gengdi, en allrasízt fyrir fisk eða önnur mat- væli, þvi það væri sannreynt, að margir fátæklingar hefðu orðið blá- fátækir vegna óhæfilegrar tóbaksnautnar, helzt við sjávarsíðuna, og lagzt 9
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Eimreiðin

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Eimreiðin
https://timarit.is/publication/229

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.