Eimreiðin


Eimreiðin - 01.05.1898, Side 66

Eimreiðin - 01.05.1898, Side 66
146 kosti frá Austur- og Vesturlandinu, hjer um bil eins fljótlegt að koma brjefi með skipi til útlanda, er slíkt gæti komið áð liði. En auk þess að þessir landshlutar þannig færu á mis við því nær allan hagnaðinn af sæsímanum, þá eru miklar líkur til að hann yrði þeim beinlínis til hnekkis. Ef Rvík ein stæði í frjettaþráðar- sambandi við útlönd, hlytu bæði kaupmenn og blaðamenn þar að standa svo miklu betur að vígi en á öllum öðrum stöðum á landinu, að þeir hefðu yfirtökin í öllu og veruleg samkeppni gegn þeim yrði ómöguleg. En þá væri ekki hægt að segja, að hinir landshlutarnir hefðu eiginlega varið sem bezt þeirra skerf í þeim 700,000 kr., sem veittar hafa verið til sæsímans. Með því jeg nú þóttist sjá, að hvorki með framlögum úr landssjóði nje frá hjeruðum og einstökum mönnum (um slíkt er varla að tala á Islandi) mundi fást það fje, sem nauðsynlegt væri til landþráðanna, sneri jeg mjer til fjárlaganefndar Dana í ríkis- þinginu og innanríkisráðgjafans og reyndi að sýna fram á nauð- syn landþráðanna og hve mikla þýðingu þeir gætu haft fyrir Dani, fiskiveiðar þeirra, verzlun og siglingar hjer við land. Fór jeg fyrst fram á, að tillagið úr ríkissjóði væri haft svo ríflegt, að unnt væri að skylda íjelagið til að leggja landþræði. Hjelt jeg því fram, að sanngjarnt væri, að ríkissjóður legði fram tvöfalt tillag á móts landssjóð (70,000 kr. ári), þar sem tillag hans væri bæði fyrir Fær- eyjar og Danmörku (35,000 kr. fyrir hvort um sig). En þetta þótti bæði fjárlaganefndinni og ráðgjafanum of freklega í farið við ríkissjóð, en duldist þó hins vegar ekki, hve afarmikil nauðsyn væri á að gera eitthvað til þess, að landþræðir gætu komizt á á íslandi í sambandi við sæsímann. Eptir margítekaðar mála- leitanir fram og aptur varð niðurstaðan sú, að fjárlaganefndin setti ákveðin skilyrði fyrir fjárveiting ríkisþingsins til sæsímans, og snerta tvö af þeim ísland sjerstaklega, en hin málið yfir höfuð. Þessum skilyrðum er haldið leyndum, svo að ekki einu sinni rikis- þingið í heild sinni fjekk að vita þau, heldur fóru þau einungis í milli ráðgjafans og nefndarinnar; en þó var samþykkt, að fjár- veitingin væri ógild, ef þau væru ekki uppfyllt. Jeg fjekk að kynna mjer þessi skilyrði, en var bannað að skýra frá þeim. Annað af þeim skilyrðum, sem snertu ísland sjerstaklega, laut að því, ef sæsíminn yrði lagður á land í Rvík, en hitt að því, ef hann yrði lagður i land á Austfjörðum, en fjelaginu skyldi frjálst að velja, hvort það kysi heldur. Að skilyrðinu, sem sett var við

x

Eimreiðin

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Eimreiðin
https://timarit.is/publication/229

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.