Eimreiðin - 01.09.1903, Blaðsíða 25
í85
eftirþrá umbóta. Fengi kennanarfæri þvenglanna allar þarfir
þeirra bættar án frekari áreynslu, þá hefði maburinn aldrei risið
upp úr leðjudjúpi lindýrsins, og lifði hann í dag í Eden iðjuleys-
ingjanna, mundi hann eigi ónáða sig með uppgötvunum, umbótum
og framförum; hann mundi eigi öðru sinna en hugsunarlausri nautn
eða munaði. Ekkert mundi eftirreka ef engin væri barátta við
böl og þraut, engin þörf dygðar og engin hugsun um endurlausn
og sáluhjálp. l’ar væru og engin illindi, en eigi heldur nokkur
góðleiki. Öll tilveran yrði gagnsýrð af siðferðislegu kæruleysi.
Gott er gott einungis fyrir það að ilt er annars vegar, og
guð er guð af því að hins vegar er djöfull.
Eins og hið illa er eigi alveg neikvætt, eins er mynd Satans
í trúarfræðunum meir en ímyndun ein.
Goethe segir:
»Pví illa má ei alveg glata,
Og árinn gamli er meir en hró;
ÍVí hann, sem allir — allir hata,
Er eitthvað þó«,
Lítum nú á hvernig Satan er úr garði gjörður í guðfræði,
þjóðsögnum og skáldskap. Er hann eigi einkar-fróðlegur karl?
Prátt fyrir það, að hann er frömuður og forkólfur allra glæpa,
hefir hann ófáar fegri og skárri hliðar, eins og göfgum og gild.
um stórhöfðingja sæmir. Eftir frásögunni í 3. kap. Genesisbókar
er Satan faðir vísinda, því að hann ginnir Evu til að smakka á
eplinu skilningstrésins, og hinir svo nefndu Ofítar (gnóstiskur trú-
arflokkur) dýrkuðu höggorminn fyrir þá sök. Satan kemur óróa
af stað í mannfélaginu, sem aftur kemur hreyfing á heiminn áfram
og upp á við, þrátt fyrir öll óþægindi; hann er frömuður rann-
sókna, uppgötvana og framsóknar. Peir Gíordanó Brunó og
aðrir vísindamenn vóru álitnir afsprengi hans og hans vegna of-
sóttir og á bál bornir af kirkjunni. Og þegar vér lítum til samn-
inga manna við djöfsa, verður oss ósjálfrátt að bera virðing fyrir
þessum forna höfðingja. Satan hjá Milton er hinn mesti stórbokki
og hinn harðvígasti landráðaseggur og fullhugi, sá er heldur kýs
að þola eilífar píslir, en að láta undan. Athugum eingöngu það
atriði, að samkvæmt samhljóða vitnisburði mótstöðumanna hans,
getur enginn verið áreiðanlegri viðskiftamaður en hann. Hann hefir
verið prettaður og svikinn af ótölulegum syndurum, dýrðlingum,