Eimreiðin - 01.09.1903, Blaðsíða 32
192
Moti Guj stakk höndunum í vasana, tugði grein til að
hreinsa á sér tennurnar, spásseraði fram og aftur um skóglendið
og skopaðist að hinum fílunum, sem vóru nýkomnir að vinnu.
Chihun sagði nú bónda hvernig komið var. Fór bóndi því
af stað með svipu og lamdi henni kringum sig reiðulega mjög, en
Moti Guj auðsýndi hvíta manninum þann heiður að bera hann
næstum fjórðung mílu, kringum skóglendið og »hrrumpa« honum
svo niður á loptsvalirnar. Svo stóð hann fyrir utan húsið og hló
með sjálfum sér, svo að hann hristist allur af ánægjunni, eins og
fíla er siður.
»Við skulum lemja hann«, sagði bóndinn, »hann skal fá þá
rækilegustu barsmíð, sem nokkur fíll hetir fengið. Fáðu honum
Kala Nag og honum Nazim 12 feta langa hlekkjafesti hvorum
og segðu þeim að lemja hann 20 högg«.
Kala Nag, sem þýðir svartur höggormur, og Nasim vóru
tveir langstærstu fílarnir í nýlendunni, og meðal annars vóru þeir
stundum notaðir sem böðlar, því enginn maður getur barið fíl
svo dugi.
Peir tóku keðjurnar og hringluðu þeim í rönunum, er þeir
nálguðust Moti Guj sinn frá hvorri hlið, til að ná honum milli sín.
Moti Guj hafði aldrei, í öll sín 34 ár, verið laminn með hlekkja-
festum, og hann langaði ekkert til að vita, hvernig það væri. Svo
hann beið við og hallaði sitt undir hvorn, um leið og hann að
gætti hvar í feitu hliðinni á Kala Nag höggtönn mundi ganga
lengst inn. Kala Nag hafði enga höggtönn, keðjan var veldis-
merki hans; en honum leizt ráðlegast að fara langt á svig við
Moti Guj á síðasta augnabliki og láta, sem hann hefði tekið keðj-
una með að gamni sínu. Nazim sneri við og flýtti sér heim,
hann var ekki upplagður til að slást morguninn þann, og Moti
Guj var þannig látinn einn með spert eyru.
Bóndi sá nú að hann fékk ekki að gjört, og Moti Guj labb-
aði aftur á stað til að líta eftir, hvernig stallbræðrum sínum gengi
vinnan. Fíll, sem ekki vill vinna og gengur laus, er ekki eins
þægur meðferðar eins og laus 2600 punda fallbyssa í miklum sjó-
gangi. — Hann klappaði á herðarnar á gömlum kunningjum og
spurði þá, hvernig gengi að draga út stubbana; hann rausaði heil-
mikið um vinnu og um sjálfsagðan rétt fílanna til langrar middags-
hvíldar; svona gekk hann um kring og gjörspilti öllum hinum fíl-