Eimreiðin - 01.09.1903, Síða 49
209
höfðu spert upp ginið, skilur hann eftir gapandi og gónandi hvern
á annan og innilega sorgbitna út af því, að slíkur þúnfiskur,1 sem
búinn var að gleypa hjá þeim svo mikla beitu, skuli vera slopp-
inn út úr neðstu möskvum lagnetsins.
23. Pessi nýi eigandi rýkur þá í mig með ákafa, því hann
er siðlaus ruddi og heimskingi og enn þá logandi hræddur við
hlekkina, og vilji svo til að einhver gangi fram hjá og smelli með
keyri, þá reisir hann eyrun og hugsar með mestu óbeit til myln-
unnar og jafnframt húsbónda heimilisins, og er hann óþolandi
maður öllum þeim, er verða á vegi hans. Frjálsum mönnum mis-
býður hann og sína fyrverandi samþræla húðstrýkir hann upp á
reynslu, hvort einnig sér sé þess konar leyfilegt. Gengur svo á
þessu, þangað til hann lendir hjá einhverri skækjunni eða kemur í
hann löngun til að ala veðhlaupshesta, eða hann ofurselur sig
smjöðrurum, sem leggja við dýran eið, að sannarlega sé hann
fríðari en Nírevs,2 ættgöfgari en Kekrops og Kódros, vitrari en
Odyssevs og auðugri en sextán Krösosar til samans og rekur svo
að því, að þessi aulagarmur eys út á svipstundu þeim fjármunum,
sem smátt og smátt hefir verið nurlað saman með margs konar
meinsærum, gripdeildum og hrekkjabrögðum.
24. Hermes. Þar segirðu hér um bil rétt frá, eins og það
gengur til. En þegar þú nú gengur á þínum eigin fótum, hvern-
ig ferðu þá að rata svona blindur? Og hvernig geturðu þekt
þá úr, sem Sevs sendir þig til af því hann álítur þá auðsins
maklega?
Auður. Heldurðu þá aö ég geti fundið þá? Nei. það veit
hamingjan, það er öðru nær. Eg hefði þá ekki yfirgefið annan
eins mann og Aristídes og farið til Hipponíkosar og Kallíasar og
margra annarra Aþeninga, sem ekki eru eins obols virði,
Hermes. En hvernig ferðu þá að, þegar þú ert sendur?
Auður. Eg ráfa þetta upp og ofan, fram og aftur, þangað
til ég rekst á einhvern af handahófi og þessi, sem fyrst verður
fyrir mér, hefir mig burt með sér og heldur mér hjá sér og færir
þér, Hermes! þakkir fyrir þennan óvænta ávinning.
25. Hermes. Mundi þá ekki Sevs með þessu móti verða
1 Fúnfiskur (thynnus) er stór fiskur, sem mikið veiðist af í Miðjarðarhafi.
2 í Ilíonskv. Hómers segir svo að Nírevs hafi verið sá af Grikkjum í Tróju-
stríði, sem næst gekk Akkillesi að fríðleik.
• 4