Eimreiðin


Eimreiðin - 01.09.1904, Qupperneq 4

Eimreiðin - 01.09.1904, Qupperneq 4
164 langstærsta af öllum skatttekjum landssjóðs, kaffi- og sykurtollur- inn, á vörum, sem fjarri fer að neytt sé á þann hátt, að neyzla þeirra standi í nokkru hæfilegu hlutfalli við efnahag neytendanna. Yfirleitt munu tollar naumast gefa miklar tekjur, nema þeir séu lagðir á vörur, sem notaðar eru af allri alþýðu manna, og á þessu óréttlæti verður aðeins að nokkru leyti ráðin bót með beinum sköttum (eignar- og tekjuskatti og fasteignaskatti). Af síðust landsreikningum má nú sjá, að af tekjum landssjóðs fyrir árin 1900 og 1901 stafaði því nær miljón króna frá tollum og útflutningsgjöldum, þar sem ekki nema um 128,000 kr. stöfuðu frá hinum svonefndu beinu sköttum (sköttum á jörðum og lausafé, húsaskatti og tekjuskatti). Þessir beinu skattar mynda í sambandi við útflutningsgjaldið af fiski og lýsi samstæða skattaskipun, sem sett var með skattalögunum 1877 og síðan hefur í öllu verulegu haldist óbreytt. Var sá tilgangurinn með báðum þessum skatta- greinum í sameiningu, að leggja samskonar skatt á allar tekjur og alla eign, enda hafa skattalög þessi, þegar miðað er við þann tíma, er þau voru samin, vafalaust verið prýðisvel af hendi leyst, einkum að því er snertir að sjá um, að skattarnir kæmu réttlát- lega niður, þó þau kannske hafi verið helzt til vísindalega nákvæm í tilraunum sínum til að gera öllum jafnhátt undir höfði og sjá um, að enginn væri órétti beittur. Pessir beinu skattar eru þannig ekki nema lítill hluti af öllum tekjum landssjóðs, og stafar það að nokkru leyti af því, að í skattaskipuninni er þeim skattinum slept, sem í flestum öðrum löndum er aðaltekjuuppsprettan, sem sé fasteignaskattur á húsum. Hinn svo nefndi húsaskattur er sem sé alls ekki neinn eiginlegur fasteignaskattur; þar sem veðskuldin er dregin frá, þegar skatt- urinn er lagður á, verður þessi skattur samkvæmt eðli sínu ein- göngu eignarskattur, enda var sá líka tilgangurinn, eftir þeirri af- stöðu, sem honum hefur verið mörkuð í skattaskipuninni. Pegar hús er virt á 20,000 kr., en veðsett fyrir 15,000 kr., greiðist skatturinn af einum 5000 kr., og sé húsið veðsett fyrir jafnmiklu og það er vert, er alls enginn skattur greiddur af því til lands- sjóðs. Frá sjónarmiði skattalaganna er fult samræmi í þessu, með því að skatturinn er eignarskattur og hús, sem er veðsett á þann hátt, er ekkert eignarígildi fyrir eigandann, eignin er hjá veðhaf- anum og á hana er lagður skattur sem eign hans D: svo framar- lega sem hann er búsettur á Islandi.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76

x

Eimreiðin

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Eimreiðin
https://timarit.is/publication/229

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.