Eimreiðin


Eimreiðin - 01.09.1904, Síða 16

Eimreiðin - 01.09.1904, Síða 16
176 veita henni meiri fræðslu og leiðbeining í hinum tveimur aðal- atvinnugreinum landsins, landbúnaði og fiskiveiðum. — Að fara að leggja toll á smjörlíki, til þess að styðja smjör- framleiðsluna, mundi alls ekki verða að tilætluðum notum, heldur til ógagns eins. Pað yrði til þess, að leggja allþungan skatt á sjómannastéttina og fólk við sjávarsíðuna, aðeins til hagsmuna fyrir þá bændur, sem framleiða lélégasta smjörið, og mundi þá jafnframt verða til þess, að draga úr áhuga manna á að búa til gott smjör, sem nú virðist eiga góða framtíð fyrir höndum, Landbúnaðurinn íslenzki ætti í tollmálinu að taka sér landbúnað Dana til fyrir- myndar. Danmörk er eitt af þeim fáu löndum, sem ekki veitir landbúnaði sínum neina tollvernd, og þó er Danmörk vafalaust einmitt það landið, sem bezt af öllum löndum Norðurálfunnar hefur sigrast á þeim erfiðleikum, sem samkepni annarra heimsálfa hefur bakað landbúnaði Norðurálfunnar. Löggjafarvaldið hefur ekki með óeðlilegri verðhækkun látið það viðgangast, að landbúnaðurinn léti sér lynda, að birgja innlenda markaðinn, heldur hefur tollfrelsis- verzlunin neytt bændurna til að vinna með röggsemi og atorku að því, sem samkvæmt staðháttum og legu landsins liggur beint við fyrir það: að birgja enska markaðinn með smjöri, fleski og eggjum. Að þessu hefir löggjafarvaldið stutt með ríflegum fjár- veitingum til alls, sem miðað gat til þess, að efla dugnað bænd- anna og bæta framleiðsluafurðir þeirra. í Danmörku eru nú brúkuð um 45 milj. punda af smjörlíki á ári og um 11 milj. punda af ódýru útlendu smjöri, en engum kemur til hugar að kvarta yfir því, að þetta leiði til þess, að »peningar fari út úr landinu«; allir sjá og játa, að það er til stórkostlegs hagnaðar fyrir þjóðfélagið fjárhagslega, að geta sjálfir notað þessar ódýru vörur, af því að það gerir mönnum mögulegt, að beina allri smjörgerð sinni í þá átt, að framleiða sem allra bezta vöru og selja svo af henni 160 milj. punda á ári til útlanda fyrir 152 milj. króna í peningum, sem koma inn í landið. Jafnöfugur og smjörlíkistollurinn mundi og tollur á vefnaðar- vöru reynast, ef menn með honum ætluðu sér að efla innlendan baðmullariðnað eða ullariðnað. íslenzki markaðurinn er altof lítill til þess, að þar sé hægt að reka baðmullariðnað með nokkrum hagnaði. Ullariðnaðurinn er sjálfsagt miklu eðlilegri fyrir landið og ætti því að geta þrifist án tollverndar. Úr fyrstu erfiðleikun- um við að koma honum á fót gæti landssjóður, eins í þessari

x

Eimreiðin

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Eimreiðin
https://timarit.is/publication/229

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.