Eimreiðin


Eimreiðin - 01.09.1904, Qupperneq 24

Eimreiðin - 01.09.1904, Qupperneq 24
bókunum og skrifborðinu. »Fjölð freistaðak«, fyrst og fremst, því að hans einlæga hluttekning í kjörum og örlögum íslands og Noregs ber þess ljósan vott með hversu miklum lifandi fróðleik, hversu miklum framkvæmdar áhuga hann kom aftur frá þessum löndum, þaðan sem hann bar til smiðju sinnar óþijótandi efni til þess að smíða úr því ögn fyrir ögn. Með lifandi atorku og öllu sínu manngildi sótti hann fram fyrir sitt elskaða ísland. Bækur hans um ísland og íslendinga og enn öllu fremur ritgjörðir hans um stjórnarbaráttu íslendinga, er hann skrifaði í viðaukablaðið »Múnchner allg. Zeitung«, sýna hversu mjög verk hinna miklu íslenzku ættjarðarvina, einkanlega vinar hans Jóns Sigurðssonar, lágu honum á hjarta. Það mun og eigi ofsagt, að einmitt þessar ritgjörðir hans hafi átt góðan þátt í því, hver endalok urðu hinnar fyrri stjómarbaráttu íslendinga. í’etta má meðal annars marka af því, hvemig hinum danska ráðherra Krieger fórust orð, er hann lagði stöðulagafrumvarp sitt fyrir ríkisþing Dana. Hann bað þá þingmenn að tala sem fæst um málið, því Island ætti volduga vini í útlöndum, sem henda mundu hvert óvarkárt orð af hálfu ríkisþings- ins á lofti. í’að getur nú ekki verið neinum vafa bundið, að þessi orð ráðherrans áttu framar öllum öðrum við Konráð Maurer, og sýnir það ljóslega, hve mikill ótti dönsku stjórninni hefur staðið af ritgerð- um hans um málefni og pólitík íslendinga. Þessir fyrstu samfundir okkar, vinar og kennara, og jafnframt námsbróður og embættisbróður afa míns, komu mér, eins og mörgum öðrum, í hið allra fyrsta samband við Norðurlönd. Allir söfnuðu þá frímerkjum í Múnchen með miklum ákafa og við drengirnir byrjuðum auðvitað á því þegar við vórum lítil börn. f’egar Maurer við heim- sókn sína til okkar úti í garðinum heyrði talað um frímerkjaákefðina í mér, hét hann piltinum, sem komst í sjöunda himin af gleði og stóð með öll vitin opin frammi fyrir þessum fallega, vinalega gamla manni, frímerkjum frá Noregi og íslandi, og af hans munni heyrði ég enn þá meira um hina fjarlægu ey, hið germanska lýðveldi og þess núverandi ástand, En frímerkin, sem mér vóru heitin, fékk ég ásamt sendibréfi til mín, mér til mikillar og óvæntrar ánægju, strax næsta morgun áður en ég fór í skólann. Þetta var svo einkennilegt fyrir Maurer, að hann var svo góður og fljótur til að gera barninu ánægju, og með því ávann hann sér vináttu og þakklæti bæði ungra og gam- alla. Útskýring Maurers á skammstöfuninni »aur.« á frímerkjunum og tilsögn í að bera það fram, var það fyrsta, sem ég lærði í íslenzku, og með hversu óviðjafnanlegri alúð og lipurð kunni ekki gamli maður- inn lagið á að vekja áhuga barnsins og gefa því leiðbeiningar af sín- um ríkulega og örugglega fróðleiksforða! Seinna talaði þessi föðurlegi vinur minn og lærifaðir einu sinni lengi við mig um /-ið í »Þórrc og ð-ið í »Sigurðr«, nöfn, sem ég rakst á í Eddu, og þó var Maurer ekki aðallega málfræðingur; en hann elskaði íslenzkuna, bæði hina fornu og hina lifandi. Þegar Maurer tókst á hendur ferð sína til ís- lands (1858), knúinn til þess af rannsóknarákefð sinni, vóru ekki að- eins samgöngurnar ennþá svo ófullkomnar, að það var í rauninni aðdáanlegt afreksverk, hvernig ungmennið Maurer, daginn eftir trúlofun sína, sleit sig frá heitmeyju sinni og ástvinu (sem eftir það um æfina
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76

x

Eimreiðin

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Eimreiðin
https://timarit.is/publication/229

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.