Eimreiðin


Eimreiðin - 01.09.1904, Side 30

Eimreiðin - 01.09.1904, Side 30
Kristindómsdeilur í fornöld. Eftir prófessor J. L. HEIBERG.1 Trúhreyfing sú, sem Páll postuli hóf í Rómaveldi og varð til þess eftir hálfa þriðju öld, að Konstantínus mikli gaf út tilskip- anir sínar um umburðarsemi við kristna menn, á fullkomlega skilið athygli, þótt ekki væri fyrir annað en hin stórkostlegu eftirköst sín í sögu mannkynsins. Spurningin um vöxt og viðgang kristilegrar trúar kemur í rauninni ekki til mála hjá þeim, sem eru þeirrar skoðunar, að hún sé yfirnáttúrleg og opinberuð og eftir því brot á því orsakasamhengi. er sagan — eins og hver önnur vísindi — eingöngu fæst við. Að vísu opnar guðfræðishugtakið »fylling tímans« gátt fyrir rannsóknum með vísindasniði á því, hverjir þeir þættir vóru í framþróun og menning, er hagstæðir voru útbreiðslu kristilegrar trúar og ruddi henni braut. En meðan menn halda dauðahaldi í opinberunarhugtakið, getur ekki verið um veruleg vísindi að ræða, því að það er sá óskasteinn, er í hverju tilteknu atriði ryður öllum torfærum úr vegi og lamar allar rannsóknir. Á sjónarhól sögunnar er málið ákaflega erfitt viðfangs, af því hvernig heimildum er háttað. Rit nýja testamentisins og hinar kristilegu apókrýfur2 frá sama tíma eru — þótt slept sé vand- kvæðum þeim, sem eru á því að ákveða aldur þeirra — að eins vitni um ástand og tilfinningar innan vébanda safnaðanna í sveit- um og héruðum, er þeir tóku yfir og sjaldan vóru víðáttumikil. En í þeim eru fáar og lítt áreiðanlegar frásögur um afstöðu hins mentaða og mikilsmegandi hluta heiðinna þjóða, og er það þó miklu merkilegra atriði í þessu máli. Og jafnvel þessi hluti heið- inna þjóða er — að svo miklu leyti sem hann er kominn á það 1 Grein þessi er þýdd úr hinu fjöllesna tímariti »DET NY AARHUNDREDE« (apr. 1904) og er höfundur hennar einn af hinum helztu vísindamönnum Dana, sem háskólinn í Oxford nýlega hefur gert að heiðursdoktor, þótt hann áður væri doktor við Kaupmannahafnarháskóla. — Greinina má ekki skilja sem árás á kristindóminn, heldur er hún einungis söguleg frásögn um árásir heiðingja á hann á hinum fyrstu öldum kristninnar. Þar sem kristindómurinn á bernskuskeiði sínu ekki einungis gat staðist slíkar árásir, heldur dafnaði og óx þrátt fyrir þær, þá er auðsætt, að þær muni ekki geta orðið honum til mikils hnekkis nú á þroskaskeiði sínu og fullorðins- árum. RITSTJ. 2 0: rit, sem hafa ekki hlotið viðurkenning kirkjunnar. ]?ÝÐ.

x

Eimreiðin

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Eimreiðin
https://timarit.is/publication/229

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.