Eimreiðin


Eimreiðin - 01.09.1904, Side 47

Eimreiðin - 01.09.1904, Side 47
20 7 hafa verið mjög vandaðan mann, og að sál hans hafi öðlast ódauð- leik og verið tekin til himins, eins og sálir annarra góðra manna. En það væri aðeins misskilningur kristinna manna að göfga hann sem guð. »Fyrir því skalt þú ekki hafa ill orð um hann, en aumka mennina fyrir fávísi þeirra«. Að sögn Porfýríosar var nokkrum heiðingjum svarað þessu, er þeir leituðu véfréttar um hvort Kristur hefði verið guð, og fleiri virðast hafa gert þenna greinarmun á Kristi og kristindómi — Porfýríos tilfærir mörg hæði- leg umyrði véfréttanna um kristna menn —. Ágústínus segir, að sumir kristindómsféndur fullyrði, að Kristur sjálfur hafi ekki af- nei'tað guðunum, en tignað þá á töfravísu, og að þeir hafi veitt honum mátt til að gera kraftaverk. En hann var ekki nema maður, »þó að hann væri gæddur vitsmunum með afburðum«. Fals eða fávísi lærisveinanna gerði hann fyrst að guði. Skilningi þessum bregður líka fyrir í næsta riti gegn kristilegri trú eftir Júlíanus keisara (Apostata), þar sem hann fer því fram, að hvorki Páll né »sýnoptisku« guðspjöllin hafi árætt að kalla Jesús guð. Pað gerði fyrst Jóhannes, er hann sá, hversu trúarflokkurinn óx og efldist, og hann gerði það ekki nema með hálfóljósu hug- taki um orðið (logos). Rit Júlíans er ritað í leiðangrinum gegn Persum og er að nokkru leyti1 varðveitt í orðmörgu og hugsanasnauðu svari gegn því eftir Kýril biskup (frá því hér um bil 430). Annars ber það líka keim af ritum Porfýríosar. Báðir láta þeir í ljós um köllun Mattheusar,2 að þeir hneykslist á léttúðinni, þar sem hann hleypur eftir skipun, sem kastað er fram af honum ókunnum manni. Júlían getur líka öfganna í ummælum Páls um undrakraft skírnarinnar. Hann notar og staðinn (1. Korinthubréf 6, 9) til að sýna, hversu trúskiftingar standi á lágu siðferðislegu stigi. Hann hefur alveg sama viðbjóð á Páli sem Porfýríos. Af honum megi búast við öllu. Hann beri af öllum loddurum og svikahröppum, er sögur fari af, hafi litskifti eftir því sem á stendur, og segi Grikkjum annað en Gyðingum. Pað er vafalaust runnið frá deiluritum Por- fýríosar, er hann sakar Esra um að hafa aflagað og afbakað Mósesbækurnar. 1 1. bók af þremur. Endirinn á riti Kýrils er glatað, eins og önnur rit, er sett vóru saman gegn riti Júlíans. 2 Matth. 9, 9: Og hann segir við hann: Eylg þú mér. Og hann stóð upp- og fylgdi honum.

x

Eimreiðin

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Eimreiðin
https://timarit.is/publication/229

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.