Eimreiðin - 01.09.1904, Síða 51
211
veraldar. Hvorki grísk hugsun né grísk fegurðartilfinning gat felt
sig við, að þessi guðlega listasmíð, veröldin, ætti að líða undir lok.
Sumt af þessu á rót sína að rekja til algrísks ástands. En í
flestum atriðum hafa Grikkir flutt mál mannlegs anda, eins og
þeirra var von og vísa, og borið fram þau mótmæli, er hann
mun endurtaka um aldur og ár, og það meira að segja að kristn-
innar eigin dómi.
Pegar Eeódósíus mikli lét færa líkneski sigurgyðjunnar úr
öldungaráðssalnum 384, gerði mentaður heiðingi Róm orð þessi
upp: Ber þú lotning fyrir aldri minum! Undir þessu merki hef
ég lagt undir mig allan heiminn! Hverju skiftir það, á hvern veg
menn leita sannleikans. Svo miklum leyndardómi komast menn
ekki að með einu móti. I þessum síðustu orðum kemur það
fagurlega í ljós, sem gagnstætt er hinum opinberuðu trúbrögð-
um, er ein þykjast hafa allan sannleika að geyma. Pað má gera
sér í hugarlund, hvernig það hefur fallið siðuðum mönnum að
leggja fyrir óðal þá heimssmíð, er hinir vitrustu menn hinnar
gáfuðustu þjóðar höfðu verið að reisa af beztu hugsunum sínum
um þúsund ára bil, og fá í staðinn ormétinn heim, þar sem djöf-
ullinn nagaði neðan rótina, og betra líf í vændum annars heims,
þ. e. a. s. þeir, er vildu fótum troða alt það, er Grikkir til þessa
þóttust hafa fram yfir siðlausar þjóðir og bera ægishjálm í af þeim,
yndið af þekkingu sinni og sigurglaða meðvitund um eigin göfgi.
Pýtt hefur
SIGURÐUR GUÐMUNDSSON.
Nýja stjórnin.
Loksins höfum við íslendingar þá fengið stjórn, sem við get-
um kallað okkar eigin stjórn í sérmálum vorum. I'etta er hinn
fyrsti áþreifanlegi árangur af hinni löngu baráttu okkar, og honum
ættu sannarlega allir íslendingar að fagna, enda er víst enginn
vafi á, að þeir gera það undantekningarlaust.
14’