Eimreiðin


Eimreiðin - 01.09.1904, Side 53

Eimreiðin - 01.09.1904, Side 53
213 hennar, má ganga að því vísu, að þessari reglu verði framvegis fylgt, ekki að hálfu, heldur að öllu leyti við skipun hverrar nýrrar stjórnar á íslandi. Og það er einmitt þetta, sem mest er í varið við skipun nýju stjórnarinnar. Hvort menn eru ánægðir með manninn, sem í það og það sinn skipar stjórnarsessinn, skiftir auðvitað minstu. Séu menn óánægðir með hann og þyki hann reynast illa, þá ryðja menn honum burtu og setja í hans stað annan, sem menn treysta betur og svo koll af kolli. Pað mikla, sem er unnið með þessu, er þá það, að úr þessu fá Islendingar sjálfir að ráða því, hvaða stjórn þeir hafa. Poli þeir til lengdar ónýta og illa stjórn yíir sér, þá er það þeim sjálf- um að kenna. Og þá má skollinn sjálfur vorkenna þeim, því þeir eiga þá ekki betra skilið. Að því leyti sem þessu hefur verið slegið föstu með ráðherra- valinu, er full ástæða fyrir alla að gleðjast yfir því. Hitt er annað mál, hve hepnir við höfum verið með manninn. Úr því verður reynslan að skera og mun mörgum virðast, að enn sé helzt til snemt um það að dæma. Og það er auðvitað töluvert hæft í því, jafnskamma stund og hann enn hefur setið að völdum. En þó að tíminn sé stuttur (aðeins 72 ár þegar þetta er ritað), þá hefur honum þó tekist að gefa ótrúlega margar bendingar um það, hvernig hann muni ætla að reynast, og er ekki nema rétt, að það sé tekið til athugunar nú þegar. Hitt getur þá komið til umræðu síðar, hvorum megin sem það kann að verða 1 vogar- skálinni. Pað var á alþingi tekið sterklega fram við umræðurnar um stjórnarskrármálið, að afarmikið væri undir því komið, að hinn fyrsti ráðherra vor yrði einbeittur maður, sem héldi fast fram skoðunum og stefnu alþingis og aldrei hopaði á hæli, ef danska stjórnin gerði nokkra tilraun til að ganga á rétt vorn. Pað vildi svo til, að á þetta reyndi þegar við skipun ráðherrans, og má af hinni vasklegu og drengilegu framgöngu hans við það tækifæri ráða, hvers síðar muni mega af honum vænta, ef líkt kemur fyrir. Alþingi hafði sem sé einróma lýst því yfir, að það skoðaði það sem sjálfsagðan hlut, að ráðherra íslands (en ekki forsætisráðherra Dana) yrði látinn undirrita skipun hins nýja íslenzka ráðherra með konungi, og einn hinn helzti forkólfur þeirrar skoðunar var ein- mitt ráðherraefnið sjálft. Hann stílfærði setninguna um það í

x

Eimreiðin

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Eimreiðin
https://timarit.is/publication/229

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.