Eimreiðin


Eimreiðin - 01.09.1904, Page 54

Eimreiðin - 01.09.1904, Page 54
214 nefndaráliti neðri deildar og lét uppi sem óbifanlega sannfæring sína, að annað gæti ekki komið til tals. En hve lengi var Adam í Paradís? Pegar til stjórnarinnar kasta kom, hélt hún því fram, að forsætisráðherrann (en ekki ráðherra íslands) ætti að undir- rita skipunarbréfið, og þá var kempunni allri lokið. í*á var svo sem sjálfsagt að láta að vilja blessaðrar stjórnarinnar, ganga sem skjótast á bak orða sinna og meta sína eigin sannfæring og vilja þingsins að vettugi. Pví annars gat ráðherratignin verið í veði. Aðrir mundu nú reyndar heldur hafa kosið, að láta ráðherratignina eiga sig, heldur en að bregðast svo aumingjalega bæði sannfæring sjálfs sín og vilja þings og þjóðar, þegar fyrst reyndi á að gæta réttar hennar. En hann var ekki á því, ráðherrann okkar nýi. Og eftir því sem einn af aðalverjendum hans í þessu máli hefur gefið í skyn í blaðinu »Reykjavík«, þá var það, sem fyrir honum vakti, aðallega það, að ef hann neitaði að taka ráðherraembættið með þessum kostum, þá hefði svo getað farið, að annar hefði hlotið það, sem gætilegar hefði talað um undirskriftarspurninguna á þing- inu. Pað varð því að meta meira, hver ráðherratignina hlyti, heldur en hvort rétti þjóðarinnar væri borgið eða ekki. En er þá nokkuð gengið á rétt þjóðarinnar með þessu, munu menn spyrja. Stendur ekki alveg á sama hver undirskrifar með konungi? Hefur ekki undirskriftin aðeins formlega eða teóretiska þýðingu? Nei, öðru nær en svo sé. Undirskrift ráðherra með konungi hefur ætíð verulega og praktiska þýðingu. Hún er fyrir- fyrirskipuð til þess, að menn geti komið fram ábyrgð gegn ráð- herranum fyrir gjörðina, af því að konungurinn er sjálfur ábyrgðar- laus. í Danmörku má mönnum standa á sama, hver ráðherranna undirritar með konungi, af því að ríkisþingið á jafnan aðgang að þeim öllum með að koma fram ábyrgð á hendur þeim, ef eitthvað er að athuga við gjörðina. En alt öðru máli er að gegna um Is- land. Alþingi íslendinga á ekki aðgang að því að koma fram ábyrgð gegn neinum af ráðherrum konungs nema ráðherra Is- lands. Sé því eitthvað af því, er snertir sérmál vor, framkvæmt af öðrum ráðherra en ráðherra íslands, þá er það þvert ofan í stjórnarskrá vora, án þess að alþingi þó geti komið neinni ábyrgð fram fyrir brotið, af því að það á engan kost á að ná til þess manns, sem það framdi. En enginn mun vilja neita, að skipun ráðherra vors heyri undir sérmál vor, þar sem hann hefur með þau ein að fara. Pví sameiginlegu málin koma honum ekkert

x

Eimreiðin

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Eimreiðin
https://timarit.is/publication/229

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.