Eimreiðin


Eimreiðin - 01.09.1904, Page 63

Eimreiðin - 01.09.1904, Page 63
223 hefur fylgt í þeim efnum: að úthluta þeim til flokksmanna sinna, svo að hver fái sinn bita. Sú reynsla, sem vér höfum af nýju stjórninni þennan hálfs árs tíma, sem hún er búin að sitja, er þá í fám orðum sagt þessi: 1) Hún er þreklaus út á við og vanrækir að gætaréttar landsins. 2) Hún er bundin á gamlan hægriklafa og vanrækir að útvega sér nægilega margbreytta sérþekkingu. 3) Hún er snauð af umbótahugmyndum, en auðug af skriffinsku. 4) Hún er óhæfilega bruðlunarsöm á landsfé. 5) Hún er ólöghlýðin. 6) Hún er þrándur í götu bænda, sjómanna og iðnaðar- manna við lánveitingar til atvinnuumbóta. 7) Hún er einsýn og lætur stjórnast af flokksfylgi í út- hlutun embætta og annarra starfa. En ekki er nema sanngjarnt að játa, að stjórnin hefur ekki enn að neinu marki fengið tækifæri til að sýna nema aðra hlið sína: umboðsstjórnarhæfileikana. Hvernig hún reynist í löggjöfinni, þegar sýslunefndirnar eru búnar að fylla auða rúmið í heila hennar með umbótahugmyndum, fá menn fyrst að sjá á næsta þingi. Er þá vonandi að hún geri verulega bragarbót og komi fram í alt annarri mynd en hingað til. Því geri hún það ekki, en þingmenn og kjósendur reynist þó nógu þrællyndir til að þola hana, er auðsætt að hún muni ekki síður blóðga þá og rífa, en gaddavírinn veslings sauðskepnurnar í blindbyl á vetrardegi. Hún verður þá sannnefnd gaddavírsstjórn. V. G. Ritsjá. G. T. ZOÉGA: ÍSLENZK-ENSK ORÐABÓK. Rvík 1904 (Sig. Kristjánsson). í’essi bók fyllir stórt skarð í bókmentum vorum og bætir úr brýnni þörf. Hún gerir það að tvennu leyti. Hún bætir fyrst og fremst úr

x

Eimreiðin

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Eimreiðin
https://timarit.is/publication/229

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.