Eimreiðin


Eimreiðin - 01.05.1908, Page 23

Eimreiðin - 01.05.1908, Page 23
103 ísland, fjögur sumur, 5 sumur alls með ferðinni 1837. í’að sýndi sig fljótt, að líkami Jónasar var ekki fær um slíkar ferðir, en hugurinn bar hann þó áfram, svo það mátti heita, að hann ferð- aðist meira af vilja en mætti. Jónas hafði ekki heilsu til að þola vosbúð á ferðalagi og tjaldlegur, hann var þungur á sér og stirður og tók nærri sér að ganga í fjöll og brettu. Sumarið 1840 ferð- aðist hann með Japetus Steenstrup um Vesturland; gamall maður í Aðalvík sagði mér, að Jónas hefði þá oftast dvalið í tjaldi, en Steenstrup hefði klifrað berg og hamra einsog köttur. Með því Jónas þoldi illa ferðalög og var oft þreyttur, reyndi hann að hressa sig og stæla líkamann með áfengi; en það gjörði ilt verra, hann varð oft vikum suman hálflasinn að hvíla sig á bæjum, og og þess í milli fékk hann þunglyndisköst, svo hann gat lítið eða ekkert starfað. Veturinn 1839—40 lá Jónas þunga legu íReykja- vík, og hafði haustið áður legið veikur norður í Oxnadal; 1842 lagðist hann austur á Fljótsdalshéraði o. s. frv. Hver jarðfræð- ingur, sem eitthvað verulegt vill gjöra að gagni á Islandi, verður að vera brattgengur í fjöll og þola að liggja úti á öræfum, en heilsuleysi Jónasar gjörði honum hvorttveggja ómögulegt; um öræfi fór hann aldrei, en þau taka yfir meir én helming alls ís- lands. Afleiðingin af öllu þessu varð, að hann gat ekki fram- kvæmt það, sem hann ætlaði sér, rannsóknin varð öll í molum; Jónas ferðaðist aðeins um vanalega vegi í bygðum og mun tæplega hafa getað kynt sér fjórða hluta af flatarmáli landsins. Pað hafa eflaust verið Jónasi mikil vonbrigði, að hann ekki gat framkvæmt áform sín, en það er furða, hvað hann þó gat afrekað þrátt fyrir alt heilsuleysið. Pegar Jónas Hallgrímsson kom heim úr ferðinni á Aust- fjörðum, haustið 1842, var farið að hugsa um íslandslýsinguna; eðlislýsingu landsins átti Jónas að semja, en Jón Sigurðsson tók að sér þjóðlýsinguna og mátti segja, að ekki var hægt að velja betri menn. Til þessa fyrirtækis veitti Bókmentafélagið Jónasi 200 rd. styrk á ári og Jóni Sigurðssyni 150 rd. Vinna Jónasar við lýsinguna gekk seint; hann byrjaði á ýmsum köflum, en hætti svo aftur, svo ekkert varð úr neinu; mun heilsuleysi, féleysi, þunglyndi og óþreyja mjög hafa dregið úr kröftum hans, og þegar hann andaðist 26. maí 1845, aðeins eftir hann örlitlar, sundur- lausar uppteiknanir til lýsingarinnar. Bókmentafélagið kostaði útför Jónasar og styrkti hann nokkuð síðustu árin; það er

x

Eimreiðin

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Eimreiðin
https://timarit.is/publication/229

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.