Eimreiðin


Eimreiðin - 01.05.1908, Qupperneq 39

Eimreiðin - 01.05.1908, Qupperneq 39
svo ómjúkt nibur og hlóð úr henni snjókastala, margar mann- hæöir yfir jarðflötinn. — Bær skáldsins var nær því allur hulinn undir snjóhröftnunum. Hatin stóð í lægð, en þangað sækist hríðin mest eftir að bera byrðar sínar, og hlaða þeim saman. Uppi í rúmi í litlu lágu torf-baðstofunni blundaði skáldið og hvíldist upp við herðadýnu. Hann lauk augunum upp til hálfs, þegar stærstu byljirnir geisuðu yfir baðstofumæninn, svo hvein í öllu, og sendu ískaldar frostrokur inn um smugurnar, setn þeir fundu á gömlu moldarveggjunum; en svo lukust augu hans strax aftur. Hann andvarpaði, og féll svo aptur í sama dvalann. Konan hans sat á rúmstoknum með höfuðið hneigt ofan í bringu, og hendurnar krosslagðar í kjöltunni. Á ofurlitlu borði við höfðalagið týrði á olíulampa, sem sendi daufa ljósglætu yfir að öðru rúmi, sama megin í baðstofunni. Öðru hvoru leit konan upp. Augu hennar voru döpur og rauð af svefnleysi og gráti, en samt sofnaði hún ekki. Hún horfði svefnþrungnutn augum yfir hið náföla og innsogna andlit mannsins síns. Andardráttur hans var þungur og erfiður og sogandi hrygla fyrir brjóstinu. Svo leit hún yfir að hinu rúminu, þar sem börnin þeirra sváfu. f*að bærði ekkert á þeim, og höfuð hennar hné aftur ofan í bringuna, augun lukust aftur, en með ákveðnum viljakrafti hélt hún svefninum aftur. Hún var búin að vaka svo margar nætur, og nú vissi hún, að þessi hlaut að vera hin síöasta. Einkennin voru of glögg á ásjónu hins deyjandi manns, til að efast um það. Svo þetta var þá endirinn á draumum þeirra og vonum — dauði, dauði, dauði! Myrkur yfir öllu — öllu — — Hún leit í draumórum vökunnar yfir leiðina, sem þau höfðu gengið saman. Hún var ekki löng — aðeins sex ár. Pau höfðu sézt í fyrsta skifti, þegar hún var tvítug, en hann var þremur árum eldri. Bæði voru þau efnalaus og áttu ekkert nema ástina, sem þau báru hvort til annars, og óslitnar framtíðarbrautir, milli fjalls og fjöru, sem voru hlaðnar og ruddar með höndum vonar- vætta þeirra. — Eftir eitt ár voru þau gift og farin að búa. En maðurinn hennar kunni ekki að búa. Hann var skáld, en ekki búmaður. Pau höfðu byrjað með sama sem ekkert, og eftir sex ára sambúð áttu þau líka sama sem ekkert, nema þrjú efnileg börn, sem juku heimilisánægjuna, en sem bættu þó lítið fyrir búskapnum. Skorturinn varð því hlutskifti þeirra. Hann hafði aldrei verið sterkbygður, og klæðleysi og kuldi, skortur á góðri
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80

x

Eimreiðin

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Eimreiðin
https://timarit.is/publication/229

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.