Eimreiðin


Eimreiðin - 01.05.1908, Síða 40

Eimreiðin - 01.05.1908, Síða 40
120 og hollri næringu, að meðtöldum illum húsakynnum, og — máske meira en nokkuð annað — að sjá allar framtíðarvonir sínar, um að komast áfram í heiminum, hrynja til grunna,' varð honum þyngri byrði, en hann fengi risið undir, og nú var ekkert annað eftir — ekkert — ekkert — nema hinn þögli dauði. Hún gat ekki — vildi ekki —- ásaka hann. Hún elskaði hann, og hann hana. Hún skildi hann — þekti þrár hans og langanir. Hversu oft hafði hann ekki skemt henni með söngunum sínum fögru — ljóðunum inndælu. En til þess að búa þau til, hafði hann tekið tímann frá heimilisskyldunum — frá henni og börnunum. Hún vissi að aðrir átöldu hann. Peir höfðu sagt það við hana, að hann væri ekki til neins, því hann kynni ekki að bjarga sér. En þeir hinir sömu sungu söngvana hans og lásu ljóðin hans — glöddust af þeim og skemtu sér við þau. Og þau voru hans vinna. — Pví hefði hann aldrei fengið borgun fyrir sína vinnu eins og aðrir? Eða var þá vinnan hans einskis virði? Voru ljóðin hans, sem færðu líf og ánæggju inn á heimilin, ekki þess virði að höfundur þeirra hlyti að minsta kosti ekki áfellis- dóma fyrir að búa þau til — fengi fremur hjálp en fyrirlitningu ? — En enginn hafði hjálpað honum, en allir tekið á móti ljóð- unum hans eins og einhverri sjálfsagðri fórn frá honum. Henni fanst þetta ekki vera réttlátt. Hún hafði oft talað um það við hann, en hann aðeins sagt, að þeir kynnu að sjá það við sig seinna, hann gjörði þetta hvort sem væri fyrir sjálfan sig, af því hann hefði yndi af að gjöra það. — En henni fanst samt, að nágrann- arnir breyttu ekki rétt. Og nú var hann að deyja! Svo þetta var þá endirinn á allra þeirra draumum og vonum — — — Um miðnætti lauk hann upp augunum og vaknaði til fulls af svefndrunganum. »Ertu hérna?« — »Já, hjartað mitt!« — »Ertu ekki ósköp þreytt?« — »0 — ekki svo fjarskalega.« — »Hefirðu ekki sofnað ennþá?« — »Nei.« — »Ekki ennþá! — En nú er það bráðum á enda.« »Já, ég veit það, elskan mín,« svaraði hún og fór að gráta. »Já, ég er að deyja, hjartað mitt! Geturðu fyrirgefið mér?« mælti hann í klökkum rómi. »Ég hefi ekkert að fyrirgefa þér, elsku vinurinn minnU — Tárin streymdu niður kinnarnar. Éað glitraði tár í auga hins deyjandi manns. Hann leit yfir

x

Eimreiðin

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Eimreiðin
https://timarit.is/publication/229

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.